Gleðilegt nýtt ár! Það eru reyndar um fimm tímar í nýtt ár hér í Kanada en nýlega sló klukkan tólf á Íslandi og því ekki úr vegi að óska landsmönnum til hamingju með nýja árið og þakka fyrir það liðna.
Árið 2010 var sannarlega viðburðarríkt í lífi mínu. Þar standa auðvitað hæst upp úr þessir síðustu fjórir mánuðir í Kanada - ný vinátta, ný kunnátta og nýjar minningar hafa bæst við í reynslu og tilveru. Ég er afar þakklát fyrir allt það skemmtilega sem ég hef fengið að upplifa og mun aldrei gleyma þessari lífsreynslu.
Í gær heimsóttum við Faith mjög skemmtilegt safn hér í Svakatúni; Saskatoon Western Development Museum. Það er svipað og Árbæjarsafn, segir sögu fylkisins Saskatchewan frá 1900 til dagsins í dag. Safnið er innandyra og samanstendur af ótal húsum, tólum og tækjum sem tilheyrðu fólki hér í fylkinu á síðustu öld. Þegar gengið er inn í safnið þá blasir við gata með húsum beggja megin sem hægt er að fara inn í, bílar standa við götuna ásamt alls kyns litríkum hlutum. Safnið er alveg frábært - en auðvitað gleymdi ég myndavélinni! What else is new!! Þau sem vilja kynna sér safnið geta kíkt á þessa netslóð: http://www.wdm.ca/stoon.html
Í dag, Gamlársdag, höfum við Faith verið í algerri afslöppun - kominn tími til! Við horfðum á hokký-leik þar sem Kanada keppti við Svía í heimsmeistarakeppni 21 árs og yngri. Hörkuspennandi leikur sem endaði með sigri Svía. Ég reyndi að halda með Kanada allan tímann en eitthvað innra með mér leiddi mig í átt til Svíanna - svona er þetta, maður stjórnar ekki innri sport-tilfinningunum! Passaði mig á því að fagna ekki mikið í lokin (by the way, framlenging og vítakeppni!! - what a game!).
Framundan er annar leikur og svo rólegheit fram að miðnætti þegar nýju ári verður fagnað. Þá hef ég hugsað mér að kíkja aðeins út og athuga hvort einhverjir rakettuóðir Kanadabúar verða á ferðinni! Ég sá annars rakettuóða Íslendinga í Reykjavík á netinu - það er víst eitt stykki myndavél í Öskjuhlíðinni sem tók myndir af öllu geiminu. Mjög skemmtilegt! (þrátt fyrir að myndavélin hafi frosið stundum :)
Hlakka til að sjá ykkur öll þegar heim er komið - adios!
Frásagnir af námsleyfisferð klerks úr Kópavogi til Kanada, sept-des 2010. Svona aðeins til að leyfa fólki að fylgjast með og sjá hvernig klerkinum líður á framandi slóðum.
Friday, December 31, 2010
Wednesday, December 29, 2010
Jólin, jólin, allsstaðar
Nú er fimmti í jólum hér í Kanada og viðburðarríkir dagar að baki. Hef átt yndisleg jól í faðmi kanadískra vina og satt best að segja aldrei farið í eins mörg jólaboð!
Á aðfangadagskvöld fórum við Faith í jólamessu í kirkjuna okkar (Augustana) kl. 18 og héldum svo til Kevins (skólastjóra skólans) í jólamáltíð. Kalkúnninn var á borðum ásamt fleira góðgæti og auðvitað var kona alveg pakksödd eftir ósköpin. Síðan settumst við niður og opnuðum nokkra pakka - Kevin er af norskum ættum og því kunnugur siðum okkar Norðurlandabúa. Fékk óvæntar gjafir úr öllum áttum og hálf skammaðist mín að hafa ekki komið með fleiri gjafir sjálf til viðstaddra! Síðan var haldið í miðnæturmessu í Resurrection Lutheran Church til séra Ali Tote. Hann er frá Kamerún en hefur búið í Kanada um nokkurt skeið. Yndislegur prestur, mjög líflegur og beinskeittur í tali og tónum. Ég spilaði undir sálmasönginn og í nokkrum söngvunum spilaði Ali með á bongótrommur! Virkilega skemmtilegt :)
Á jóladag var haldið í messu árla morguns í kirkjuna okkar, síðan farið í jólaboð til Jann (kennara í skólanum), og síðan í jólaboð til Barböru og Martins (Barbara er skólasystir). Magavöðvarnir fengu góða æfingu þennan dag! Í seinna jólaboðinu spiluðum við fram eftir kvöldi, alveg eins og heima - aldeilis var ég sátt við það!
Annan dag jóla spilaði ég við messu í Resurrection kirkjunni, síðan fór ég í mat hjá séra David og Margret konu hans (prestshjón Augustana safnaðarins) og síðan fór ég í jólaboð til Ana og Jonathan (Ana er dóttir Jann, kennara í skólanum). Komst að því að Jonathan er mikill aðdáandi Íslendingasagna og á 10 þeirra í enskri þýðingu! Uppáhaldsbókin hans er Völsungasaga og síðan Grettissaga. Pabbi verður nú ánægður að heyra þetta! :)
Þriðja dag jóla fór ég aftur í boð til Barböru og Martins - systir Barböru og fjölskylda hennar voru líka á staðnum og við tókum aftur í spil eftir máltíðina. Fjórða dag jóla fór ég svo í bíó með Faith, Zhófi og Paul (Zhófi er skólasystir, Paul er vinur hennar) á myndina King's Speech - alveg stórskemmtileg mynd! Fimmta dag jóla, í dag sem sagt, fórum við Faith í langan göngutúr meðfram ánni í aðeins 19 stiga frosti - yndislegt! Kíktum á safn hér í borg og fengum okkur heitan súkkulaðisopa. Og núna er ég sem sagt á leiðinni í enn eitt boðið: Séra Ali Toti og frú Dominique hafa boðið okkur í kvöldmáltíð hjá sér. Á morgun verður svo hádegisverður snæddur með vinkonu Faith, við ætlum að heimsækja fleiri söfn seinnipartinn og þann 1. janúar förum við svo í nýársboð til Söruh skólasystur og fjölskyldu hennar.
Nokkuð ljóst má vera að klerkur hefur verið afar upptekinn undanfarna daga og verður áframhaldandi þar til haldið verður heim á leið næsta mánudag. En svona eiga jólin að vera - fögnuður í faðmi nýfengra vina í notalegu umhverfi. Í huga mér hljóma fjögur orð hátt og snjallt sem svar við þessu upplifelsi: Kærar þakkir fyrir mig!

Thursday, December 23, 2010
Jólakveðja yfir hafið
Kæru vinir og vinkonur, frændur og frænkur, systkini og foreldrar. Gleðileg jól! Ég óska ykkur öllum gleðilegra og blessunarríkra jóla og vona að þið fáið notið þess besta sem boðskapur þeirra býður upp á: Hlýju, kærleika, friðar, vonar og trúar. Sjálf er ég við það að upplifa mín fyrstu jól á erlendri grundu, mín fyrstu jól fjarri fjölskyldu minni, mín fyrstu jól með nýju fólki á nýjum stað. Þrátt fyrir það þá leggjast jólin vel í mig. Ég sakna þess að vera ekki heima, en ég fagna nýrri reynslu og nýjum upplifunum. Ég bjóst við að vera einungis þiggjandi þessi jólin hvað varðar helgihald kirkjunnar en því fer fjarri. Ég mun taka þátt í lestri ritningargreina og bæna við jólamessu kl. 18 í Augustana Lutheran Church á aðfangadagskvöld og svo verð ég undirleikari við messu kl. 23 í Resurrection Lutheran Church sama kvöld (einnig þann 26. des. kl. 10). Það verður því aldeilis nóg að gera. Mér er boðið í 4 jólaboð yfir hátíðarnar svo ekki verður einsemdinni fyrir að fara. Ég get því með sanni sagt að ég hlakka til jólanna!
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól, gott fólk. Og drífið ykkur endilega í kirkju yfir hátíðirnar - það jafnast ekkert á við það á jólum! :)

Tuesday, December 14, 2010
Á kafi
Það fór nú aldrei svo að kona lenti ekki í ævintýrum í desember. Að vísu er ekki um ástarævintýri að ræða, föður mínum væntanlega til mikilla vonbrigða, en ævintýri var það samt.
Eftir dágóðan hjólatúr í gær um Svakatúni í snjókomu, -10 gráðum og örlítilli gjólu, stökk stelpan í sturtu og ákvað svo að þrífa loksins herbergin tvö. Þar sem hún þjösnaðist á ryksugunni (sem er því miður ekki sú kraftmesta í heimi - suss Sigga og Rúnar, engar dóna hugsanir!!) birtist Faith allt í einu og sagði: Íris, we've got a problem. Og það var dagsatt hjá henni. Eitthvað hafði niðurfallið úr húsinu bilað í blessuðu húsinu og kyndiklefaherbergið var fullt af vatni - slatti rann líka undir teppið fram á gangi. Til allra hamingju höfðum við stöllurnar ekki staðið í stórræðum á klósettinu þarna á undan, en ég hafði notað sturtuna og Faith þvottavélina. Vatnið sem vall þarna upp úr niðurfallinu var því bara nokkuð hreint, miðað við aðstæður. Við brettum upp ermarnar, fórum í vöðlurnar og "mokuðum" upp vatninu í klefanum, ryksuguðum upp mestu af vatninu í teppinu á ganginum og gerðum það sem við gátum til að hindra skemmdir. Okkur sýnist að það hafi tekist ágætlega. Faith hringdi í skólpkarlana, þeir gátu ekki komið strax um kvöldið en þeir voru mættir stundvíslega kl. 8.15 í morgun. Allt í gúddí núna, engir pollar, bara svolítið blautt teppi.
Í dag fékk ég síðan skemmtilegan tölvupóst. Ein lúthersk kirkja hér í Svakatúni bráðvantaði undirleikara við sálmasönginn síðla á aðfangadagskvöld og árla morguns á annan dag jóla. Ég bauðst til að redda þeim, blessuðum, með forláta undirspili á píanó, þó með þeim yfirlýsingum að ég væri alls enginn prófessíonal, bara fúskari. Hef samt svolitla æfingu í þessu því ég er búin að spila í nokkrum messum í kapellu skólans með sæmilegum árangri. En þeim er víst alveg sama þó ég sé fúskari, þökkuðu mér í bak og fyrir, því þeim finnst nú betra að hafa einhvern undirleik frekar en engan. Ég verð því að vinna þessi jól, við tvær guðsþjónustur - ekki sem prestur heldur sem undirleikari! Hver hefði trúað þessu??? Og ég sem ætlaði að slappa af þessi jól! Svona er þetta, alltaf kemur kona sér í alls kyns vandræði - en þessi vandræði eru þó gleðileg :)
Sem sagt, nóg við að vera þessar síðustu vikur í Kanada. Ætli ég verði ekki búin á því þegar ég kem heim???

Saturday, December 11, 2010
Fröken Desember
Það er kominn desember. Ég hef nú verið í Kanada í rúma þrjá mánuði og á þrjár vikur eftir af dvölinni. Vildi óska að ég gæti verið hér lengur. En, eins og konan sagði: Þú færð ekki allt sem þú vilt í þessu lífi. Þá er bara að njóta þess sem eftir er í botn. Mér verður nú ekki skotaskuld úr því, búin að skila öllum verkefnum í skólanum og bara rólegheit framundan. Hvílíkur munur á fröken Desember núna og undanfarin ár!
Kötturinn og fiskarnir voru í gæslu hjá mér þessa vikuna í fjarveru húsmóðurinnar. Kisi er orðinn ansi ágengur, það er ekkert hægt að gera í friði lengur, hvorki vinna í tölvu, sofa eða eta - alls staðar birtist blessaður Chango. En ég verð nú að segja að ég nýt athyglinnar - það er gott að knúsa kisa á köldum vetrardögum. Talandi um kulda þá er búið að vera nokkuð kalt upp á síðkastið. Nasahárin frjósa stöðugt þegar ég fer út - afskaplega óþægilegt fyrirbrigði! Fyrir þau sem vilja fylgjast með veðri hér í Svakatúni þá er þetta slóðin á veðurfréttastofuna: http://www.theweathernetwork.com/weather/cask0276
Á fimmtudaginn héldu stúdentar, kennarar og starfsfólk skólans jólateiti. Löng hefð er fyrir slíku. Ég sat í undirbúningsnefndinni sem innkaupastjóri og ræstitæknir. Partýið var frábært! Skemmtiatriðin meiriháttar bæði hjá stúdentum og kennurum. Ég læt fylgja með videóupptöku af einum hluta skemmtiatriðis frá annars árs nemum: http://www.youtube.com/watch?v=84gN3FgWy_o
Í dag fékk ég óvænta hringingu frá ættingjum hér í Kanada. Þegar ma og pa fóru í ferð á Íslendingaslóðir í sumar þá fengu þau upplýsingar um ættingja sína hér í landi, afkomendur Kanadafara frá því fyrir aldamótin 1900. Þau hittu einn frænda pabba á Íslendingadeginum í Gimli og hafa verið að hvetja mig til að hafa samband við fleiri ættingja á meðan ég dvel hér. Ég er auðvitað alger aumingi í svona málum, ekki einu sinni búin að hringja í þau sem þó búa hér nálægt. Um daginn fékk ég tölvupóst frá fjölskyldumeðlimi og ég gaf henni númerið mitt svo hægt væri að hafa samband. Og auðvitað klikkuð þau ekki á smáatriðunum, eins og íslenska frænkan. Mary Hallgrimson hringdi í dag, sagðist vera stödd hér í borg ásamt Norman, eiginmanni sínum (Norm frænda) og spurði hvort þau gætu ekki hitt mig eftir klukkutíma. Að sjálfsögðu! var svarið - síðan var þotið í sturtu, íslenska Síríus súkkulaði tekið fram og þau boðin velkomin á heimilið ásamt Michael syni þeirra. Þetta var sannarlega óvænt og skemmtileg heimsókn. Ég á í vændum að hitta þau aftur yfir jólin, þá fer ég í jólaboð til Michael og konu hans, Norm og Mary verða þar einnig. Jæja, ma og pa - nú ættuð þið að vera ánægð með litlu stelpuna ykkar! :)
Annars er ég ósköp sæl og glöð yfir að eiga núna tíma fyrir sjálfa mig í rólegheitum áður en ég kem heim í ys, þys og læti. Ætla að njóta jólanna í kirkjum bæjarins og í jólaboðum víðsvegar. Dásamleg tilbreyting :)

Monday, November 29, 2010
Aðventukvöld
Nú skrifar maður bara blogg á hverju kvöldi! Allt gert til að þurfa ekki að halda áfram að semja prédikun - hehe :)
Má til með að segja frá aðventustundinni sem ég fór á í kvöld. Þar hittust konur í St. Timothy Anglican Church og Augustana Lutheran Church, snæddu saman kjúklingakvöldverð, sungu jólasöngva, hlýddu á jólasögur og skiptust á gjöfum. Ég mætti á staðinn með Faith og Heather (vinkonu Faith) og lækkaði líklega meðalaldurinn um 50% við komuna. En mikið var þetta nú yndisleg kvöldstund! Svipuð því sem maður á að venjast á aðventustundum kvenfélaga heima á Fróni, nema nú var ég ekki gesturinn sem flutti hugvekjuna :) Við mættum kl. 18 og öllu var lokið rétt fyrir kl. 21. Svona á þetta að vera! Ætla svo að mæta á kökubasarinn hjá kerlunum næstu helgi - maður verður nú að stimpla sig rækilega inn í samfélag eldri kvenna hér í Svakatúni!
Gleymdi að segja ykkur í fyrri bloggum að ég hef 3svar farið í leikhús síðan ég kom. Fyrir um mánuði síðan sá ég leikritið Harvest sem sýnt var á vegum Persephone leikfélagsins hér í borg. Mjög frumlegt og skemmtilegt leikrit, byggt á sönnum atburðum sem gerðust í Kanada. Það fjallar um hjón sem ákveða að flytja úr sveitinni og í borgina, þau leigja sveitabæinn sinn afar viðkunnarlegum náunga sem tekur upp á þeirri iðju að framleiða marihuana. Fyndinn og kaldhæðinn tvíleikur. Síðan fór ég á leikrit á vegum stúdentaleikhúss háskólans, þau settu upp Pride and Prejudice - mjög áhugavert. Og að lokum sá ég Robin Hood í uppfærslu Persephone leikfélagsins. Svolítið sérstök uppfærsla, en ágætis skemmtun.
Maður er því bara á kafi í menningunni hérna megin. Hef farið oftar í leikhús á þremur mánuðum í Kanada en á þremur árum á Íslandi! Aldrei að vita nema leikhúsferðirnar verði fleiri þegar til Ísalandsins er komið. Og framundan? Tónleikar og fleiri aðventukvöld. Dásamlegt!

Sunday, November 28, 2010
Allir á völlinn!
Ég er dottin í kanadíska íþróttadellu. Það gerðist nú í vikunni, mjög skyndilega. Ástæðan er einföld: Heimamenn í kanadískum fótbolta, Saskatchewan Roughriders, komust í úrslit í bikarkeppninni, Grey Cup, og úrslitaleikurinn fór fram í dag. Andstæðingurinn var Montreal Alouettes en þessi lið mættust einnig í úrslitum í fyrra. Þá unnu fransararnir naumlega. Þessa vikuna hefur gjörsamlega allt verið undirlagt í Svakatúni vegna leiksins. Grænir litir liðsins sáust hvarvetna, fánar á bílum og húsum, fólk í grænum bolum, meira að segja í kirkju í morgun! Þegar leikurinn hófst kl. 17.30 að staðartíma sást varla hræða á ferli í borginni. Til allrar óhamingju töpuðum við leiknum, aftur naumlega. Það verður dapurlegt að mæta í skólann í fyrramálið - svartur verður líklega aðventuliturinn í nokkra daga.
Alveg er það merkilegt hvað maður dregst auðveldlega inn í hringiðu hefða og venja í nýjum heimahögum. Það er bara eins og maður hafi búið hér í mörg ár! Ég gerði mér satt best að segja ekki grein fyrir hvernig nýjir íverustaðir ná tökum á manni, hafandi enga reynslu í þeim efnum. Er alveg viss um að ég á eftir að halda með Roughriders í framtíðinni, jafnvel þó ég eigi aldrei eftir að koma hingað aftur!
Fótbolti er nú ekki eina sportið hér í Kanada - þjóðaríþróttin er auðvitað hokkí. Ég fór á leik um daginn, í háskólanum fer fram keppni á milli deilda og guðfræðigengið er með eitt lið. Ég sá þá spila en því miður töpuðu þeir fyrir tæknifræðinemunum. Týpískt! Heimurinn í hnotskurn, guðfræði á undanhaldi en tæknin í framför!
Hver veit nema fleiri tækifæri gefist til íþróttaleikja nú í desember. Annars hef ég hugsað mér að skreppa á nokkra aðventutónleika og aðra aðventuviðburði í kirkjum - Messías verður fluttur með pompi og prakt í næstu viku, hver veit nema ég skelli mér ef ritgerðarsmíð hamlar ekki för. Nú er algerlega tíminn til að anda að sér aðventunni - að þessu sinni án hefðbundinna aðventuverkefna. Enn hvað það verður góð tilbreyting :)

Wednesday, November 24, 2010
Vetur konungur og drottingin hans
Nú er aldeilis langt síðan ég bloggaði síðast - ég hef enga afsökun fyrir því en þó tvær ástæður. Sú fyrri er tímaleysi, nóg að gera hérna megin við ritgerðasmíð. Hin síðari tengist hálfgerðri lömun í íslenskri hugsun - ég er svo upptekin af því að skrifa á ensku að ég er bara algerlega andlaus á hinu ástkæra ylhýra móðurmáli. En nú brettir konan upp ermarnar og hamrar hart á ferhyrnda kassann - á íslensku.
Ég má til með að tjá mig aðeins meira um veðrið hérna í Svakatúni. Hér er kalt, já kalt, já alveg svakalega kalt! -15 til -25 gráður þessa síðustu viku. Ég hef aldrei verið í svona köldu veðri! En það er undarlegt hversu fljótt maður venst þessu. Sem betur fer er ekkert rok (ennþá) og sólin skín á snjóinn sem liggur yfir öllu. Nú borgar sig að vera í kanadísku gæsadúnsúlpunni - hún er algert æði! Öll hér eru mjög hissa á viðbrögðum mínum yfir þessum kulda, þau halda að þetta sé bara daglegt brauð heima á Fróni yfir vetrartímann! Ég var nú ekki lengi að útskýra fyrir þeim að -10 gráður á Íslandi þykir mjög kalt, og að ég hefði aldrei fyrr upplifað -20 stiga kulda - þau bara göptu, þessar elskur :)
En góðar næturfréttir. Þegar ég kom í haust sagði Faith mér að í fataskápnum mínum væri rafmagns yfirdýna sem ég mætti nota ef mér yrði kalt. Ég hugsaði með mér að það væri nú meiri vitleysan að nota svoleiðis og steingleymdi öllu um þetta rafmagnstryllitæki. En svo fjölgaði köldu nóttunum og af einskærri nauðsyn poppaði blessuð rafmagnsábreiðan aftur í huga minn. Núna heyra kaldar nætur sögunni til! Áður en ég leggst upp í rúm á kveiki ég á fyrirbrigðinu og þegar ég leggst upp í þá er ylvoglt undir ábreiðunum. Síðan slekk ég á apparatinu áður en ég sofna og ylurinn helst alla nóttina. Dásamlegt alveg hreint! Ætli þetta sé til heima???
Jólagjafirnar hafa verið keyptar, pakkaðar inn og sendar til Íslands. Hjúkk! Hef aldrei keypt jólagjafir svona snemma. En þetta var nauðsynlegt því póstþjónustan í Kanada sökkar bigtime! Sendi afmælispakka til Lilju þann 1. október sl. (í B-pósti) og hann er ekki enn kominn!! 8 vikur liðnar og þau sögðu að þetta tæki í mesta lagi 6 vikur. Ég held að pakkinn sé týndur og kanadískum tröllum gefinn, það verður bara að hafa það. En jólagjafirnar skulu ná Íslandsströndum á réttum tíma!
Kláraði ritgerð í játningarfræði í dag um upprunasögu erfðasyndarinnar. Afar áhugavert efni! Á morgun mun ég syngja messu í kapellu skólans á íslensku - afar ánægjulegt! Um helgina ætla ég að semja prédikun um erfðasyndina, síðan ætla ég að byrja á ritgerð um frásögu fyrstu Mósebókar af skilningstré góðs og ills í tengslum við eldri goðsagnir úr fornum heimi mið-Austurlanda. Afar skemmtilegt! Sem sagt, nóg að gera.
Veit að það verður líka nóg að gera hjá ykkur öllum heima á Fróni. Desember nálgast, þessi yndislegi og annasami mánuður. Njótið aðventunnar, kæru vinir :)

Wednesday, November 3, 2010
Kanadískur kuldaboli
Veðrið. Af hverju hefur manneskjan svona mikla þörf fyrir að tala um veðrið? Ég held að það sé vegna þess að veðrið hefur áhrif á andlegt ástand og hugarfar og hvort sem okkur líkar vel eða ekki við kulda eða hita þá spilar hvort tveggja stóra rullu í lífi okkar. Í dag er ágætis veður í Svakatúni. Ég heyri hins vegar fréttir af snjókomu og stormum á Fróni. Svona er lífið - heitt eða kalt. Ég bíð enn eftir hinu mikla frosti sem einkennir kanadíska veturinn. Fæ þó líklega aðeins að upplifa helming af því sem til kulda telst því mestur er hann fyrstu tvo mánuði ársins.
Eitt er það sem hefur angrað mig þó nokkuð og það er hversu kalt er á heimilinu hér við Osler stræti í samanburði við afdrepið í Akurhvarfinu. Meðalhiti innanhúss er 18-19 gráður. Ég er vön 20-22 gráðum. Trúið mér, það munar um hverja gráðu! Á hverju kvöldi fer ég að sofa með hroll í kroppinum. Ég sef með þunnt lak yfir mér, tvö ullarteppi og eitt rúmteppi. Heavy duty stuff! Er klædd í náttföt og hlýja sokka og auk þess eru flíspeysan og flís vettlingarnir nærri - þeir síðarnefndu voru notaðir í nótt. Hér er nefnilega mikill munur á hitastigi dags og nætur - á daginn getur hitinn farið í 14 gráður um þessar mundir en niður í -5 gráður á næturnar. Veðurfarslegt rokk og ról :)
Ég hef því þurft að endurnýja birgðir af hlýjum sokkum, höfuðfati og bolum. Hef enn ekki látið verða af því að kaupa flís-náttfötin því ég er viss um að ég á aldrei eftir að nota þau þegar ég kem heim! En óska þess þó að eiga þau að hér í Svakatúni. Svo á kanadíska gæsadúnsúlpan eftir að koma sér vel þegar kólnar, hún hangir þó enn í fataskápnum, blessunin.
Öllu er þó hægt að venjast. Nú er mér nokk sama þó ég skrölti af kulda á kvöldin - ég bæti bara á mig fötum. Svo er líka svolítið hressandi að sofna með rautt og kalt nef - svo lengi sem það lekur ekki úr því! Ég og kuldaboli erum því orðnir ágætis vinir, þrátt fyrir að hann hegði sér öðruvísi en frændi hans á Fróni. Alltaf gaman að eignast nýja vini, ekki satt?

Wednesday, October 27, 2010
Á ferðalagi í villta vestrinu
Þá kom loksins að því að ég fór í smá ferðalag um Kanada. Þessa vikuna er miðsvetrarfrí í skólanum og því kjörið tækifæri til að leggja land undir fót. Á föstudaginn síðasta leigði ég mér bíl í viku og ákvað að skella mér eitthvert út í Guðs græna náttúru Kanada, sem snerist þó í ferð um hvíta náttúru, svona veðurfarslega séð.
Áður en ég hélt af stað var ég ekki viss hvert ég vildi fara. Átti ég að fara austur og heimsækja Íslendingaslóðir í Manitoba, eða átti ég að fara í vesturátt og skoða Rocky Mountains? Fjöllin unnu sætan sigur og því var haldið í vesturátt. Ég hélt af stað árla morguns á mánudag í skítaveðri, slyddu og drullu. Já, fyrsti snjórinn á svæðinu tók þá ákvörðun að falla einmitt þegar ég hafði ákveðið að ferðast um vegi landsins. Sem betur fer var lítill sem enginn snjór á vegunum, ég gat því geyst um þá eins og mér er lagið! :) Nei, hvað er þetta - ég var eiginlega alltaf svona hálfpartinn og næstum því á löglegum, enga vitleysu! Annars var gaman að kynnast þjóðvegasiðum landsmanna, þetta eru algerar frekjur upp til hópa og stefnuljós eru notuð mjög sparlega, svona eins og heima. Þennan fyrsta ferðadag voru eknir um 900 km, alla leið til Jasper þjóðgarðsins í Klettafjöllunum. Það er nú meiri sælustaðurinn! Fjöll og skógar, vötn og lindir svo langt sem augað eygir - og svo auðvitað villt dýralíf. Ég sá risastóran elg (moose) sem sat við veginn og japlaði á einhverju - ég gat því miður ekki stoppað til að taka myndir af honum, darn! Ég sá líka buffala við veginn, innan girðingar í öðrum þjóðgarði, Elk Island National Park - risastórt kvikindi! Gat heldur ekki tekið mynd af honum, keyrandi á 120 km hraða! Loksins komst ég á áfangastað, til smábæjarins Jasper sem er í miðjum Jasper þjóðgarðinum. Alveg yndislegur bær, eins og úr ævintýri! Hitti þar einn bæjarbúa sem var nýkomin frá Íslandi með hokkýliðinu í Jasper! Enn sú tilviljun!
Reis árla úr rekkju næsta morgun, framundan um 420 km., ætlaði að leggja snemma af stað en þá lá þétt þoka yfir öllu með örlítilli snjókomu. Ákvað að staldra aðeins lengur við en þegar ég loksins hélt af stað þá sá ég engin fjöll í ca. 3 klukkutíma fyrir þoku! En það var allt í lagi, trén héldu mér upptekinni, einnig Athabasca fossarnir í fallegu umhverfi. Þeir eru nú engir Gullfoss, Dettifoss, Goðafoss eða Dynjandi - en engu að síður mjög fallegir :) Þegar þokunni létti sá ég loksins fjöllin og hvílík sýn! Allt í kring, há og tignarleg - með trjágróðri upp í miðjar hlíðar. Mikið var ég nú ánægð að sjá loksins fjöll í þessu blessaða landi! Um miðjan dag staldraði ég við í bænum Banff og fékk mér eggjaköku og svo brunaði ég til Calgary. Fyrsta stórborgin sem ég hef komið í hér í landi (fyrir utan stutt flugvallastopp í Toronto). Svo sem ágætis borg, ég sá nú ekki mikið af henni, keyrði beint á hótelið og ætlaði mér að ná værum blundi þar um nóttina. Mér varð ekki kápan úr því klæðinu - nágrannar í næsta herbergi höfðu svo hátt að ég þurfti tvisvar að hringja í lobbý-ið og kvarta! Svaf svona ca. 4 tíma allt í allt. Bömmer! Enda kom í ljós í dag, á leiðinni heim, hversu þreytt ég var - var hálf sofnuð við stýrið eftir ca. 250 km.
En hvað um það - í dag var svo haldið heim aftur til Saskatoon. Fréttir af veðri voru ekki góðar, í gær var snjóstormur á þessu svæði og sunnar, og ég hélt að ég myndi kannski lenda í einhverjum ævintýrum. En því miður - beinir, breiðir og auðir vegir alla leiðina heim, enda keyrði ég í einum rykk, 620 km. með einu bensínstoppi. Svolítið tak í baki núna, hehe :)
Þetta var auðvitað alveg frábært. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikið ég saknaði þess að keyra! Er því sæl og ánægð eftir um 1900 km keyrslu á þremur dögum - plús smá túr til Regina, höfuðborgar Saskatchewan fylkis á sunnudag, 500 km alls báðar leiðir :)
Nú er komið að hvíld. Þarf að hlaða inn myndir á eftir, svei mér ef ég tók ekki nokkrar! Set þær á Fésið. Svo þarf maður að hella sér í lærdóminn aftur eftir smá pásu - engin leti í fólki hér! Hef ákveðið að næst þegar ég heimsæki Klettafjöllin þá verð ég á mótorhjóli. Og hana nú!

Monday, October 18, 2010
24/7
Lærdómsvika dauðans að baki. Er bókstaflega búin að sitja á bossanum ca. 10-12 tíma á dag í heila viku. Kalkúnninn frá þakkargjörðadeginum situr enn sem fastast einhvers staðar á hægri mjöðminni vegna hreyfingarleysis.
Á fimmtudaginn síðasta var ég með kynningu á efni í Fimmbókarritunum. Kynnti fyrir kennara og samnemendum goðsagnir um sköpun heimsins frá mið-Austurlöndum, ca. 3-4000 ára gamlar, og tengsl þeirra við sköpunarsöguna í 2. og 3. kafla Genesis (1. Mósebók). Áhugavert, finnst þér? Well, mér finnst það! Fann geysilega skemmtilegar sögur, sumar harla klámfengnar! Áhugasamir um fornan klámkveðskap geta fengið nánari upplýsingar hjá undirritaðri.
Skilaði ritgerð í dag í Játningarfræði, um notkun Lútherskra játninga á Norðurlöndum á 16. öld. Áhugavert, finnst þér? Well, mér finnst það! Alveg einstaklega gaman að lesa um þetta efni og finna út hvers vegna við Norðurlandabúar notum ekki sömu játningarrit og systurkirkjur okkar í Germaníu og Norður-Ameríku. Áhugasamir um 16. aldar játningarfræði geta fengið nánari upplýsingar hjá undirritaðri.
Tók mér frí frá lestri í dag. Er með verk í rófubeini, herðablöðum, mjaðmagrind og lægra baki eftir setuna. Ákvað að fara í leikfimi í dag og þreif því allt hér hátt og lágt. Mér er sagt að maður tapi nokkrum kílóum við þrif - það hlýtur að vera haugalygi - ég kannast ekkert við svoleiðis! En herbergin mín tvö og salernið anga af hreinlæti þessa stundina, þvottur í tonnatali hefur verið þrifinn og þurrkaður. Næst á dagskrá er að horfa á einhverja vellu-bíómynd í tölvunni. Amen.
P.S. Tókst samt að fara út að borða og sjá myndina Life as we know it - svona inn á milli lestra. Sat á bossanum á báðum stöðum.

Monday, October 11, 2010
Þakkláti útlendingurinn
Þá er þakkargjörðarhelgin í Kanada að baki - annasöm helgi í frábærum félagsskap. Á laugardag bauð Faith, húsráðandinn minn, mér á safn skammt frá Saskatoon sem segir sögu indíána hér á svæðinu. Safnið heitir Wanuskewin Heritage Park, en orðið Wanuskewin þýðir Innri friður, eða að vera í friði og sátt við sjálfan sig. Hægt er að skoða sögu indíána í Saskatchewan fylki og þá sérstaklega á þessum stað þar sem þeir höfðu vetursetu og veiddu vísunda (buffala) í massavís með ótrúlegum aðferðum. Í kringum safnið eru gönguleiðir með nokkrum áfangastöðum þar sem upplýsingar um staðhætti og sögu er að finna. Á laugardaginn var yndislegt veður, 24 stiga hiti, og við gengum um svæðið í rólegheitunum um leið og við sleiktum sólskinið. Þetta var dásamleg upplifun og sannarlega vel þess virði. Við höfum hugsað okkur að fara aftur seinna í haust, jafnvel þegar snjór er yfir öllu, og njóta vetrarveðurblíðu. Þau sem vilja skoða safnið nánar geta kíkt á þessa síðu: http://www.wanuskewin.com/.
Nú, svo rann sunnudagurinn upp, messudagur. Í Augustana var gestaprédikari mættur á svæðið, alla leið frá Íslandi. Henni var vel tekið, blessaðri. Hún fékk a.m.k. góð viðbrögð frá viðstöddum, meira að segja innihaldsríkar athugasemdir sem er þó nokkuð fátítt svona heima á Fróni. Sú íslenska var bara nokkuð ánægð með sig.
Rúsínan í pylsuendanum var svo þakkargjörðarmáltíð á sjálfan þakkargjörðardaginn, mánudaginn. Þá mætti ég ásamt um 20 öðrum til Barböru og Martins sem höfðu eldað þennan líka risa kalkún sem etinn var með bestu lyst. Viðstaddir mættu með meðlæti og eftirrétt og ég stóð á blístri á eftir. Við sátum dágóða stund á eftir og spjölluðum um heima og geima, þetta var sannarlega notaleg stund í góðum vinahópi, flestir voru félagar úr skólanum.
Það er því þakklátur útlendingur sem fer í háttinn þetta kvöld, þreyttur en ánægður. Ævintýrin halda áfram að gerast, megi þeim fjölga enn frekar á næstu vikum!

Friday, October 8, 2010
Með bros á vör og verk í rófubeini
Enn skín sólin í Saskatoon, 24 stiga hiti í dag! Helgin verður dásamleg veðurfarslega séð svo ég ætla að nota tækifærið og sleikja aðeins sólina áður en hún hættir þessari góðvild sinni í garð Kanadabúa. Annars er þakkargjörðarhelgi núna, þakkargjörðardagurinn hjá Kanadabúum er annan mánudag í október, svolítið ólíkt siðum þeirra syðra í US of A. Á morgun förum við Faith á safn hér rétt utan við Saskatoon þar sem saga indíána (kallaðir First Nations) er rakin. Á sunnudag mun ég svo prédika í Augustana kirkju, þeirri sömu og ég hef sótt hvern sunnudag síðan ég kom, og á mánudag er ég boðin í þakkargjörðarmáltíð til Barböru og Martins, en Barbara er skólasystir mín. Skemmtileg helgi framundan!
Það er búið að vera nóg að gera við lærdóminn. Síðasta helgi var lærdómshelgi, ég sat á bossanum alla helgina og skrifaði ritgerð, saup svo seiðið af því á mánudag, alveg að drepast í rófubeininu! Skrifborðsstóllinn á heimilinu er ekki sá besti í heimi, a.m.k. ekki gerður fyrir 7 tíma stanslausa setu, tvo daga í röð! Passa mig á að gera þetta ekki aftur í nánustu framtíð. Þarf þó að hella mér í alls konar áhugaverð verkefni á næstu dögum sem eiga eftir að taka sinn tíma. En ég hlakka til - svei mér þá, það er alveg sama hvaða verkefni bíða, mér finnst þau öll áhugaverð og skemmtileg! Um daginn spurði Barbara mig hvernig mér fannst einhver ákveðinn tími í prédikunarfræðum og ég sagði auðvitað: Very interesting and so much fun! Og hún sagði: Oh, Íris, you like everything! Ég hló bara, því hún hafði auðvitað alveg rétt fyrir sér - mér finnst allt hér skemmtilegt :)
Dagarnir líða hratt, rútína er komin á dagsverkin og á hverjum degi bíða einhver verkefni. Ég elska kvöldin hér - þeim eyði ég heima í stofu, sit og les bók eða horfi á mynd/þátt í tölvunni eða sit við prédikanagerð. Umfram allt, rólegheit í hæsta gæðaflokki. Svona eiga námsleyfi að vera!

Monday, September 27, 2010
Sköpunargleði í sólskini
Nú er heitt í Svakatúni. 25 stiga hiti um helgina, 22 stiga hiti í dag (mánudag) og ekki undir 17 gráðum yfir daginn alla vikuna fram á sunnudag, samkvæmt spánni! Jæja, það fór aldrei svo að ég fékk ekki smjörþef af Kanadísku sumri. Greyin litlu áttu reyndar skilið að fá sól að hausti því hér rigndi víst stanslaust í sumar. Íslendingurinn nýtur þess líka, en 25 gráður er í það mesta fyrir mig, 15-20 er fínt!
Fór sem sagt út í garð að læra í sólskini gærdagsins. Þurfti nefnilega að semja tvær prédikanir til flutnings nú í vikunni. Tókst að sletta þeim fram úr erminni en engum sögum fer af árangri strax, það kemur í ljós á þriðjudag og fimmtudag. Uppgötvaði mér til sárra vonbrigða að það sem helst hamlar mér við gerð prédikunar á ensku er orðaforði. Ég hef ágætis samræðu orðaforða en lítinn fræðilegan orðaforða. Kannski er það bara í lagi, þá verð ég að minnsta kosti ekki háfleyg í flutningi! En hefði þó samt vilja vera aðeins "fullorðinslegri", ekki bara uppfull af táningafrösum sem áunnist hafa af of miklu sjónvarps- og kvikmyndaáhorfi!
En það þýðir víst ekkert að tauta yfir því - þetta kemur vonandi allt með reynslunni. Annars fæ ég hér mikla reynslu af helgihaldi. Á hverjum degi í skólanum er helgistund í kapellunni, með altarisgöngu tvisvar í viku. Og ég fæ að prófa nú í vetur öll hlutverkin sem í boði eru í einni messu! Haldiði að það sé nú! Eftir fjóra mánuði verð ég útskrifuð í kanadísk-lútherskum helgisiðum messunnar og get sótt um hvaða starf sem er hérna. Ætli það sé framtíðin? Hehe.

Friday, September 24, 2010
Brostnar vonir mótorhjólakonu
Áður en ég kom til Kanada hafði ég hugsað mér að leigja mér mótorhjól einhverja daga og krúsa aðeins um svæðið hér í kring. Með fullri virðingu fyrir fjölskyldu og vinum þá sakna ég eiginlega mest mótorhjólsins míns rauða frá Íslandi! Á góðviðrisdögum krúsa mótorhjólakapparnir hér í Saskatoon (ég hef enn ekki séð konu á hjóli!), í gallabuxunum sínum og strigaskónum, leðurjökkunum og með opnu hjálmana. Ég tek út fyrir það að heyra og sjá þá fara framhjá, mig langar svo að fara að hjóla! Kannski er þetta líka tengt því að ég keyri yfir höfuð ekkert hér í bæ, og það þýðir að ferðir mínar eru mjög takmarkaðar. Ég get ekki farið í langar skoðunarferðir eða þess háttar og það skerðir til muna ferðafrelsið - samt hefur það nú alveg komið fyrir að ég hjóla yfir 10 km á dag en það er bara á reiðhjóli, og að sjálfsögðu innanbæjar :)
Í vikunni kíkti ég einu sinni sem oftar á veðurspána fyrir Sasakatoon og viti menn! Spáin fyrir helgina er hreint út sagt frábær! Um 20 stiga hiti, bongó haustveður! Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og ákvað að hafa upp á mótorhjólaleigum í nágrenninu. Vikan var nokkuð strembin svo ég kom mér ekki að því fyrr en í dag, föstudag. Þá hringdi ég í Harley-Davidson mótorhjólabúð í miðbænum og spurði hvort þeir leigðu nokkuð út mótorhjól hér á staðnum. Nathan nokkur varð fyrir svörum og hann svaraði rólega: - Nei, þú verður að fara til Alberta til að fá leigt hjól. - Ég hugsaði: Ha??? Næsta fylki??? Svo ég spurði ofur varlega: - Áttu við að það séu engar mótorhjólaleigur hér í Saskatoon? - Og þá kom dómsdagssvarið: - Nei, ekki í öllu Saskatchewan fylki. Reglugerðir í fylkinu banna það. Þú verður að fara til Alberta. -
Mér varð allri lokið! Engar mótorhjólaleigur nálægt, ekki einu sinni hægt að leigja sér Scooter skellinöðru! Ég fór aftur á netið og sá að ef maður leitar að leigu þá koma nokkrar upp en það er víst eitthvað bull - fann þá þessa síðu: http://www.ridetheworld.com/canadamotorcyclerentalandtouring.html þar sem fram koma upplýsingar um fjölda mótorhjólaleiga í Kanada - og fjöldinn í Saskatchewan: Núll, zero, zilch, blanko, nada!
Sit því hér og harma ógæfu mína í hljóði. Mótorhjólaævintýri í Kanada verður augljóslega að bíða betri tíma. Draumurinn hefur kannski ekki snúist upp í martröð, það er of sterkt til orða tekið, en honum hefur í það minnsta verið frestað um óákveðinn tíma. Því það er meira en að segja það að fara til Alberta og finna leigu, það er of mikil fyrirhöfn fyrir tveggja daga túr. En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott - hef ákveðið að fara í langan hjólatúr á morgun, skoða borgina með augum reiðhjólakonunnar, ekki mótorhjólakonunnar og kanna landsins gagn og nauðsynjar á heilsusamlegan máta. Hver veit nema ég kíki við í Harley Davidson búðina niður í bæ, tjatti aðeins við Nathan karlinn og kanni hvort hann geti ekki gert eitthvað fyrir mig, aumingja Íslendinginn sem haldinn er krónískum fráhvarfseinkennum vegna mótorhjólaþurrðar. Hver veit, ég gæti kannski fengið að prófa einn nýjan Harley svona for the fun of it!

Sunday, September 19, 2010
Gæludýrablús
Hér í húsi 1227 við Osler götu í Svakatúni (þýðing Siggu Skutlu á bæjarheitinu Saskatoon), búa auk húsfreyju og leigjanda einn köttur og tveir fiskar. Báðar tegundir hafa alist upp í góðu yfirlæti húsfreyjunnar sem eins og sönnum gæludýraeiganda sæmir lætur allt eftir þeim. Nú gerðist það á haustdögum, skömmu eftir komu leigjandans, að húsfreyjan þurfti að bregða sér af bæ í þrjá daga. Var því leigjandanum falið að annast gæludýrin á meðan. Húsfreyjan ritaði samviskusamlega niður á blað leiðbeiningar þar sem fram komu allar upplýsingar um nauðsynlega þætti fæðu og uppihalds dýranna. Við fyrstu sýn leit þetta alls ekki illa út, það er svo sem ekkert stórmál að gefa ketti að éta tvisvar á dag og fiskum einu sinni á dag. Eða hvað?
Á föstudagsmorgun, stundvíslega kl. 6.15 mætti kisi litli mjálmandi inn í herbergi leigjandans og krafðist matargjafar. Leigjandinn var ekki alveg á því að láta undan svona fljótt og tókst að banda kisa frá sér í um klukkustund. En þá var auðvitað kettinum nóg boðið, stökk upp í rúm og lallaði sér bara yfir brjóstkassa leigjandans með þeim afleiðingum að stærra dýrið klöngraðist fram úr, grút morgunfúlt, og skellti matnum í kattarskálarnar. Kisi var auðvitað ekki lengi að svolgra þessu í sig, svona ca. 2 og hálfa mínútu eða svo. Á meðan drattaðist leigjandinn niður í þvottahús þar sem kattarklósettið var að finna og hreinsaði dallinn. Síðan var komið að fiskunum. Og þá fyrst byrjaði ballið. Um er að ræða tvo fiska, einn gullfisk og eina ryksugu svokallaða - báðir fiskarnir eru nokkuð stórir. Þeim er gefið eitt stykki fiskafæði, ekki í duftformi eins og flestir þekkja, heldur er þetta pínulítið stykki á stærð við lakkrískurl. Leigjandinn þurfti sem sagt að taka upp töng, klemma eitt stykki fast með tönginni, gefa gullfiskinum fyrst, og svo taka annað stykki og gefa ryksugunni á botninum. Þá skipti miklu að láta ekki gráðugan gullfiskinn stela fæðunni frá hinum. Ó boj! Þetta var nú meiri eltingaleikurinn! Að lokum tókst þetta, þó með þeim afleiðingum að þeim gula tókst að ræna einum extra bita áður en ryksugan fékk sitt. Leigjandinn var með hjartað í buxunum allan daginn af áhyggjum yfir að guli litli hefði fengið of mikið og flyti dauður á yfirborði fiskabúrsins við lok dags! En sem betur fer gerðist það ekki.
Næsta dag byrjaði sama ballið. Laugardagsmorgunn kl. 6.15, leigjandinn vakinn við mjálmið sem hætti ekki fyrr en kl. 8 - svo lengi þrjóskaðist leigjandinn við. Kisi fékk sitt og mun betur gekk að gefa fiskunum. Sama saga á sunnudagsmorgni en þá varð leigjandanum á að leyfa kisa að lepja svolitla mjólk eftir matinn sinn, afgangsmjólk úr morgunkornaskálinni - það endaði með uppköstum á stofugólfið. Þrif og læti í kjölfarið.
Sem þessi umtalaði leigjandi þá verð ég að segja að þessi reynsla var lærdómsrík. Hún kenndi mér það sama og ég læri í hverri ferð með fermingarbörn í Vatnaskóg: Það er erfitt að bera ábyrgð á eigum annarra, þá sérstaklega lifandi viðfangsefnum. En eitt er víst: Ég er guðs lifandi fegin að þurfa ekki að vakna við mjálmið í kisa kl. 6.15 í fyrramálið - fæ vonandi að sofa aðeins lengur en það. Og annað: Við kisi erum orðnir alveg ágætis vinir þrátt fyrir morgunmjálmið :)

Wednesday, September 15, 2010
Skólastelpa á ný
Ég var búin að gleyma hvað það er gaman að vera í skóla. Með bakpoka á bakinu, svona ca. 100 kíló að þyngd, ganga/hjóla í skólann, sjá skólakrakka á öllum aldri hlaupandi út um allt á háskólasvæðinu, koma svo másandi í skólabygginguna, sitja í skólastofu og bíða með eftirvæntingu eftir kennaranum, lepja upp fróðleik af vörum kennarans (oj, þetta hljómar illa! - en þú veist hvað ég meina :), fá smá sting í magann þegar maður les áætlun vetrarins um öll verkefnin sem maður á að skila, hlusta af ákafa, skrifa niður af áfergju, henda svo öllu aftur niður í bakpokann og drífa sig á bókasafnið, lesa fyrir morgundaginn, fara niður í kapellu í hádegisbænir, borða hádegismat, aftur á bókasafnið að lesa, bakpokann á bakið, upp á hjólið og heim. Svona var dagurinn í dag - alveg dásamlegur!
Ég er búin að fá bás á bókasafninu og ég sé fyrir mér að það verði mitt annað heimili. Ég og bókasöfn erum nefnilega mjög góðir vinir - ég vann 8 ár á bókasafni með námi í mennta- og háskóla og ef ég hefði orðið eitthvað annað en guðfræðingur og prestur þá hefði ég orðið bókasafnsfræðingur. Leif heitir stjórinn á safninu, ungur og ákafur bókakarl. Hann auglýsti eftir aðstoð á bókasafninu og að sjálfsögðu bauð ég mig fram! Það er nú ekki eins og maður hafi enga reynslu! Fæ að vita á föstudag hvernig það fer. Þetta er svona frekar gamalt bókasafn, lyktin af gömlum bókum svífur yfir vötnunum og öll hönnun er í "sixties" stílnum - einstaklega sjarmerandi!
Mér finnst strax eins og ég hafi verið í þessum skóla í mörg ár. Allir þekkja alla, því hópurinn er lítill, og aðgangur að öllum hlutum, bæði lifandi og dauðum, er mjög greiður. Framundan er annasamur tími. Ég þarf að skila tveimur ritgerðum (önnur er ritskýring), tveimur útdráttum, nokkrum prédikunum, kynna efni í tíma og fleira og fleira - nóg að gera! Og auðvitað allt á ensku, svo það verður ennþá skemmtilegra! En nú verð ég að halda áfram að læra - verkefnið fyrir tíma á morgun er m.a. að lesa Genesis (1. Mósebók) - hef að sjálfsögðu lesið hana oft og mörgum sinnum en aldrei fyrr á ensku. Bara gaman!

Tuesday, September 14, 2010
Kynþáttafordómar: Ísland vs. Kanada
Fyrsta daginn sem ég kom hingað til Kanada fór ég í grillveislu (eina af þremur þá vikuna!) til skólastjóra skólans sem er í. Þar voru saman komnir nokkrir kennarar í skólanum og starfsfólk. Þarna gafst ágætt tækifæri til að kynnast kennurunum áður en skólinn byrjaði og við áttum góðar samræður. Eitt af því sem við ræddum voru kynþáttafordómar, upplifun þeirra hér í Kanada á þessum vanda, og hvernig þetta væri hjá okkur á Íslandi. Í einfaldleika og barnaskap mínum sagði ég við þau að vissulega væru fordómar til staðar á Íslandi í garð útlendinga en maður yrði lítið var við úthrópanir vegna litarháttar eða slíks. Aðeins viku síðar les ég á íslenskum fréttasíðum fregnir af ofbeldi tengdu kynþáttafordómum og þá miklu umræðu sem hefur skapast um slíka fordóma í kjölfarið.
Svona er maður vitlaus. Maður heldur alltaf að allt sé svo gott og fagurt í manns eigin ranni þegar það snertir mann ekki persónulega. Og ég áttaði mig á því að við Íslendingar erum í raun margir hverjir skelfilegir rasistar! Það sló mig að heyra frásögu eins foreldris hér í Kanada sem á ættleiddan son frá Afríku, hann er núna 16 ára. Sá hefur orðið fyrir miklu einelti og fordómum og á verulega erfitt uppdráttar. Hér er engu að síður mun alþjóðlegra samfélag en heima, ég sé hér a.m.k. fjöldann allan af fólki frá öllum heimshornum, Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og víðar. En glíman er sú sama.
Af hverju erum við svona? Ræður ótti við hið ókunnuga för eða snýst þetta um eigingjarnar hugsanir okkar til umhverfisins og okkar sjálfra? Foreldrar mínir fóru í mjög skemmtilega ferð á Íslendingarslóðir í Kanada nú í sumar. Þeim fannst afar ánægjulegt að hitta eldra fólk sem enn talar íslensku og heldur í marga siði sem rekja má til Íslands. Og hér í Norður-Ameríku er fullt af svona hópum enda byggðist landið upp af fólki frá mismunandi þjóðarbrotum. Þetta finnst okkur ánægjulegt að heyra og sjá, en þegar fólk frá öðrum þjóðum tekur búsetu á Íslandi og heldur enn í tungu sína og menningu þá verðum við alveg snar!
Það er löngu kominn tími til að hætta þessum þjóðar- og litarflokkardráttum sem hafa alltof lengi fengið að grassera á meðal okkar. Við þurfum að gæta að því sem við segjum, hætta að "djóka" með ýmis orð og hugmyndir sem gera lítið úr öðrum á einn eða annan hátt, hætta að taka undir með þessum röddum með því að þegja í stað þess að mótmæla. Því þetta er ekkert fyndið, þetta er stóralvarlegt mál.
Ég man þegar ég kom fyrst til London, þá rúmlega tvítug. Aldrei hafði ég séð svo mikið af lituðu fólki, svörtu, brúnu, Asíubúum. Hvar sem ég fór, um götur og stræti, í neðanjarðarlest eða bara á flugvöllinn, sá ég fólk af öllum stærðum og gerðum, og allskonar á litinn. Ég man hvað mér fannst þetta frábær tilfinning, ég var einn örlítill punktur í þessum risastóra heimi okkar og ég hugsaði: Svona á veröldin að vera, allir litir alls staðar! Ég vona að ég eigi eftir að upplifa þessa tilfinningu á Íslandi einhvern tíma og það held ég að takist fyrst þegar fólk af öðrum litarhætti fjölgar í landinu okkar. Annars helst óttinn við hið ókunnuga og framandi sem gerir ekkert annað en að sundra og skapa leiðindi. Það er nefnilega ekki nauðsynlegt að vera hvítur til að vera Íslendingur. Þegar okkur verður það að fullu ljóst þá höfum við tekið skref í rétta átt.

Monday, September 13, 2010
Elsku enskan
Ég upplifi nú í fyrsta sinn á ævinni að þurfa að tala og hugsa á öðru tungumáli en mínu eigin öllum stundum. Vitaskuld hef ég farið til annarra landa og talað ensku - þó aldrei meira en þrjár vikur í senn - en ég hef aldrei setið kennslustund þar sem bæði nemendur og kennari eru enskumælandi, og enska móðurmál þeirra allra. Ég hef í gegnum tíðina setið fundi, ráðstefnur eða aðrar samkundur þar sem töluð er enska en þá er ég sjaldnast sú eina tala ekki ensku sem móðurmál.
Þetta er svolítið skrítið. Ég stend mig að því að þegar ég er í messu eða við helgistund og lesið er úr ritningunni, þá reyni ég að hugsa hvernig textinn væri á íslensku - því þannig þekki ég hann! Ég stend mig líka að því að svara eða kveðja stundum með íslenskum frösum, s.s. takk, já, einmitt, sjáumst, bless. Og uppgötva svo að þeim fannst ég kannski dónleg því ég sagði ekki Thank you! En ég sagði Takk!! Það var samt gaman að heyra Terry hinn íslenskuættaða segja við mig áðan: Sjáumst! og ég svaraði á móti: See yah! alveg óvart! :)
Þetta er svolítið skrítið. Þá sérstaklega í ljósi þess að ég er ofboðslega "ensk" þegar ég er heima, eða öllu heldur "bandarísk" - enskusletturnar hrynja út úr mér, ég blóta jafnvel á ensku þó ég geri það aldrei á íslensku! Skömm að þessu!! En núna er það íslenskan sem truflar, jafnvel þó mér finnist alveg ótrúlega gaman að tala ensku við alla, æfa framburðinn og vera svolítið amerísk í öllu! Í tíma í morgun las ég í fyrsta sinn texta upphátt fyrir aðra - það tókst vel og ég hafði gaman af því. Á vafalaust eftir að gera mikið af því í vetur. Looking forward to it!

Sunday, September 12, 2010
Fyrsta vika í útlandinu
Jæja kæru vinir, fjölskylda, kollegar og annað gott fólk sem skilur íslensku!
Þá er maður kominn alla leið til Saskatoon í Kanada sem við fyrstu kynni er alveg einstaklega fallegur bær þó flatur sé! Það fyrsta sem ég tók eftir svona rétt fyrir lendingu við komuna hingað var að hér sjást engin fjöll í órafjarlægð - bara sléttur og engi, tún og akrar svo langt sem augað eygir - alveg einstaklega skrítið en samt sjarmerandi. Og maður spyr sig auðvitað: Hvað er ég eiginlega að gera hér??!!
Þessi spurning hefur hljómað víða síðustu vikurnar, bæði heima og í Kanada - hvernig datt þér þetta eiginlega í hug? Svarið er auðvitað einfalt, a.m.k. fyrir þau sem mig þekkja, kannski ekki aðra. Ég vildi fara á stað sem fáir höfðu heyrt um, einhvers staðar lengst í burtu fjarri frá öllu því sem ég hef hingað til þekkt og skilið. Ég leitaði uppi Lútherskar guðfræðideildir í henni Ameríku og fann nokkrar, en enga svona norðarlega eins og Saskatoon - og þess vegna valdi ég þennan stað! Einfalt og gott. Ég var svo heppin að komast strax í samband við skólann, fá inngöngu, fá samastað og svo að sjálfsögðu leyfið frá kirkjunni minni - og árangurinn er þessi. Ég ætla að segja ykkur örlítið frá því sem drifið hefur á daga mína að undanförnu til að gefa ykkur innsýn í lífið hér á sléttunum.
Ég bý hjá dr. Faith Rohrbough sem er fyrrum forseti skólans sem ég stunda nám við. Faith er yndisleg kona, hún sótti mig á flugvöllinn og hefur farið með mig víða um borgina. Ég er svo heppin að hafa til umráða hjá henni tvö herbergi, stofu og svefnherbergi, sér baðherbergi og alles. Chango er kötturinn hennar, það tók hann nokkra daga að taka mig í sátt en við erum orðnir ágætis vinir núna. Þetta fallega hús á sléttunni er rétt hjá háskólahverfinu, það tekur mig aðeins um 15 mín. að ganga í skólann - perfecto!
Skólinn heitir Lutheran Theological Seminary, Saskatoon. Þetta er pínulítill skóli með fáum nemendum, alveg eins og best verður á kosið :) Síðasta vika var svokölluð Orientation Week þar sem við fengum nóg tækifæri til að kynnast hvert öðru og starfsfólkinu, kennurunum - við hittumst á fundum og samkundum, fórum í ferð í nokkurs konar sumarbúðir yfir nótt, yndislega fallegan stað sem heitir Shekinah - svo það var nóg að gera. Það sem mér fannst sérstakt við þetta voru nánu samskiptin sem kennararnir áttu við nemendurnar - því hef ég ekki kynnst áður. Kennsla hefst svo á mánudag og ég hef hugsað mér að sitja nokkra kúrsa í prédikunarfræðum, Lúthersfræðum og Gamla testamentisfræðum. Hlakka til að prédika á ensku!
Nú þar sem maður hefur engan bíl til umráða þá fer ég allar mínar ferðir fótgangandi. Vonast þó til að fá hjól til afnota á næstu dögum sem ég get notað þar til snjóa tekur. Faith hin yndislega ætlar að redda mér hjóli :) Þetta þýðir auðvitað að það verður mikið um hreyfingu hérna megin - á þessari einu viku hef ég gengið meira og hreyft mig meira en á heilu ári á Íslandi - úpsídúpsí! En gerið ykkur samt engar væntingar um að ég komi þvengmjó tilbaka - maður er nú einu sinni í henni Ameríku með milljón skrilljón matar- og nammifreistingar á hverju strái!!
Og þá er það veðrið. Sunnan fjórir, skýjað og mígandi rigning að mestu. Já, það hefur rignt mikið hér síðustu vikuna, rétt eins og á Íslandi, eftir því sem ég las og heyrði. En í gær, laugardag, og í dag, sunnudag, var mjög gott veður - enda gekk ég af mér iljarnar í verslunarferðum "downtown", þurfti nefnilega að kaupa landsins gagn og nauðsynjar, eins og t.d. flíssokka fyrir kaldar nætur, og langt skóhorn fyrir djúpa skó. Það er þó nokkuð sérstakt að ganga hér um strætin, sumstaðar eru göngustígar, sumstaðar ekki, sumstaðar er enn möl á bílastæðum, ómalbikað, en víðast hvar er allt hreint og fallegt - og svo er auðvitað allt rennislétt hér - ég hlakka til að fara að reiðhjólast!!
Það sem gerir mig hvað pirraðasta enn sem komið er, eru mótorhjólin hér í bæ. Í góða veðrinu krúsa karlarnir hér á mótorhjólunum sínum, í gallabuxum og leðurjakka, með opinn hjálm - bæði á Hondum og Yamaha hjólum en þó mest megnis á Harley-um - og í hvert skipti sem ég heyri eða sé mótorhjól fara framhjá þá blóta ég í barminn (ussssss), sársvekkt yfir að komast ekki út að hjóla! Ég get fengið hjól leigt hér en það hefur bara ekki unnist tími enn til að kanna þau mál - vonandi get ég eitthvað mótorhjólast áður en ég fer. Og vitiði hvað! Ég sá alveg eins hjól og ég á í dag þegar ég var á gangi! Það var reyndar útúrtroðið af aukahlutum en alveg eins og mitt! Og að sjálfsögðu var ég ekki með myndavélina með mér til að festa gripinn á mynd - darn!!
Þetta eru búnir að vera frábærir dagar. Ég hef kynnst fullt af fólki, það er mjög auðvelt - ég hef ekki undan að taka við heimboðum til hinna og þessa. Ég fer á sunnudögum í Lútherska kirkju sem heitir Augustana Evangelical Lutheran Church, mér líst vel á fólkið allt í kirkjunni og hef hugsað mér að sækja þessa kirkju í vetur. Gaman að sitja á kirkjubekk og vera þiggjandi :)
Er komin með síma núna - lenti í vandræðum því ég get ekki notað símann minn hér - þ.e. ég get ekki keypt og notað nýtt sim-kort til að setja í símann minn, það virkar ekki. Svo ég keypti ódýran síma sem ég ætla að nota hér - en þið megið ekki hringja í mig, það kostar of mikið fyrir mig! Best að senda mér bara tölvupóst :)
Já, það er sem sagt allt gott að frétta! Hef hitt þó nokkra sem eiga ættir að rekja til Íslands - það er svona að vera í Lúthersku samfélagi, ekkert nema Skandinavar og Germanir! Einn nemandi við skólann heitir Terry Gudmundson, hann á íslenska ömmu og afa, langömmu og langafa, og kann fullt af íslenskum orðum; sagði meira að segja við mig í vikunni: Could you pass me the blýantur! Ég sprakk úr hlátri og hrósaði honum mjög fyrir flottan framburð!
Nú er nóg komið í bili en ég hef hugsað mér að blogga um dvölina hér hvenær sem ég hef tíma og nennu til. Fylgist með :)

Subscribe to:
Comments (Atom)