Monday, October 11, 2010

Þakkláti útlendingurinn

Þá er þakkargjörðarhelgin í Kanada að baki - annasöm helgi í frábærum félagsskap. Á laugardag bauð Faith, húsráðandinn minn, mér á safn skammt frá Saskatoon sem segir sögu indíána hér á svæðinu. Safnið heitir Wanuskewin Heritage Park, en orðið Wanuskewin þýðir Innri friður, eða að vera í friði og sátt við sjálfan sig. Hægt er að skoða sögu indíána í Saskatchewan fylki og þá sérstaklega á þessum stað þar sem þeir höfðu vetursetu og veiddu vísunda (buffala) í massavís með ótrúlegum aðferðum. Í kringum safnið eru gönguleiðir með nokkrum áfangastöðum þar sem upplýsingar um staðhætti og sögu er að finna. Á laugardaginn var yndislegt veður, 24 stiga hiti, og við gengum um svæðið í rólegheitunum um leið og við sleiktum sólskinið. Þetta var dásamleg upplifun og sannarlega vel þess virði. Við höfum hugsað okkur að fara aftur seinna í haust, jafnvel þegar snjór er yfir öllu, og njóta vetrarveðurblíðu. Þau sem vilja skoða safnið nánar geta kíkt á þessa síðu: http://www.wanuskewin.com/.

Nú, svo rann sunnudagurinn upp, messudagur. Í Augustana var gestaprédikari mættur á svæðið, alla leið frá Íslandi. Henni var vel tekið, blessaðri. Hún fékk a.m.k. góð viðbrögð frá viðstöddum, meira að segja innihaldsríkar athugasemdir sem er þó nokkuð fátítt svona heima á Fróni. Sú íslenska var bara nokkuð ánægð með sig.

Rúsínan í pylsuendanum var svo þakkargjörðarmáltíð á sjálfan þakkargjörðardaginn, mánudaginn. Þá mætti ég ásamt um 20 öðrum til Barböru og Martins sem höfðu eldað þennan líka risa kalkún sem etinn var með bestu lyst. Viðstaddir mættu með meðlæti og eftirrétt og ég stóð á blístri á eftir. Við sátum dágóða stund á eftir og spjölluðum um heima og geima, þetta var sannarlega notaleg stund í góðum vinahópi, flestir voru félagar úr skólanum.

Það er því þakklátur útlendingur sem fer í háttinn þetta kvöld, þreyttur en ánægður. Ævintýrin halda áfram að gerast, megi þeim fjölga enn frekar á næstu vikum!

1 comment:

  1. Skemmtilegir pistlar. Við hjónin erum að fara til Toronto í viku og ég er búinn að vera að leita að safni eða einhverju um indjána veru þar. Ef ég næ að draga konuna úr H&M.
    Kveðja úr Keflavík
    Rúnar og co.

    ReplyDelete