Monday, October 18, 2010

24/7

Lærdómsvika dauðans að baki. Er bókstaflega búin að sitja á bossanum ca. 10-12 tíma á dag í heila viku. Kalkúnninn frá þakkargjörðadeginum situr enn sem fastast einhvers staðar á hægri mjöðminni vegna hreyfingarleysis.

Á fimmtudaginn síðasta var ég með kynningu á efni í Fimmbókarritunum. Kynnti fyrir kennara og samnemendum goðsagnir um sköpun heimsins frá mið-Austurlöndum, ca. 3-4000 ára gamlar, og tengsl þeirra við sköpunarsöguna í 2. og 3. kafla Genesis (1. Mósebók). Áhugavert, finnst þér? Well, mér finnst það! Fann geysilega skemmtilegar sögur, sumar harla klámfengnar! Áhugasamir um fornan klámkveðskap geta fengið nánari upplýsingar hjá undirritaðri.

Skilaði ritgerð í dag í Játningarfræði, um notkun Lútherskra játninga á Norðurlöndum á 16. öld. Áhugavert, finnst þér? Well, mér finnst það! Alveg einstaklega gaman að lesa um þetta efni og finna út hvers vegna við Norðurlandabúar notum ekki sömu játningarrit og systurkirkjur okkar í Germaníu og Norður-Ameríku. Áhugasamir um 16. aldar játningarfræði geta fengið nánari upplýsingar hjá undirritaðri.

Tók mér frí frá lestri í dag. Er með verk í rófubeini, herðablöðum, mjaðmagrind og lægra baki eftir setuna. Ákvað að fara í leikfimi í dag og þreif því allt hér hátt og lágt. Mér er sagt að maður tapi nokkrum kílóum við þrif - það hlýtur að vera haugalygi - ég kannast ekkert við svoleiðis! En herbergin mín tvö og salernið anga af hreinlæti þessa stundina, þvottur í tonnatali hefur verið þrifinn og þurrkaður. Næst á dagskrá er að horfa á einhverja vellu-bíómynd í tölvunni. Amen.

P.S. Tókst samt að fara út að borða og sjá myndina Life as we know it - svona inn á milli lestra. Sat á bossanum á báðum stöðum.

No comments:

Post a Comment