Friday, December 31, 2010

Nýtt ár á ný :)

Gleðilegt nýtt ár! Það eru reyndar um fimm tímar í nýtt ár hér í Kanada en nýlega sló klukkan tólf á Íslandi og því ekki úr vegi að óska landsmönnum til hamingju með nýja árið og þakka fyrir það liðna.

Árið 2010 var sannarlega viðburðarríkt í lífi mínu. Þar standa auðvitað hæst upp úr þessir síðustu fjórir mánuðir í Kanada - ný vinátta, ný kunnátta og nýjar minningar hafa bæst við í reynslu og tilveru. Ég er afar þakklát fyrir allt það skemmtilega sem ég hef fengið að upplifa og mun aldrei gleyma þessari lífsreynslu.

Í gær heimsóttum við Faith mjög skemmtilegt safn hér í Svakatúni; Saskatoon Western Development Museum. Það er svipað og Árbæjarsafn, segir sögu fylkisins Saskatchewan frá 1900 til dagsins í dag. Safnið er innandyra og samanstendur af ótal húsum, tólum og tækjum sem tilheyrðu fólki hér í fylkinu á síðustu öld. Þegar gengið er inn í safnið þá blasir við gata með húsum beggja megin sem hægt er að fara inn í, bílar standa við götuna ásamt alls kyns litríkum hlutum. Safnið er alveg frábært - en auðvitað gleymdi ég myndavélinni! What else is new!! Þau sem vilja kynna sér safnið geta kíkt á þessa netslóð: http://www.wdm.ca/stoon.html

Í dag, Gamlársdag, höfum við Faith verið í algerri afslöppun - kominn tími til! Við horfðum á hokký-leik þar sem Kanada keppti við Svía í heimsmeistarakeppni 21 árs og yngri. Hörkuspennandi leikur sem endaði með sigri Svía. Ég reyndi að halda með Kanada allan tímann en eitthvað innra með mér leiddi mig í átt til Svíanna - svona er þetta, maður stjórnar ekki innri sport-tilfinningunum! Passaði mig á því að fagna ekki mikið í lokin (by the way, framlenging og vítakeppni!! - what a game!).

Framundan er annar leikur og svo rólegheit fram að miðnætti þegar nýju ári verður fagnað. Þá hef ég hugsað mér að kíkja aðeins út og athuga hvort einhverjir rakettuóðir Kanadabúar verða á ferðinni! Ég sá annars rakettuóða Íslendinga í Reykjavík á netinu - það er víst eitt stykki myndavél í Öskjuhlíðinni sem tók myndir af öllu geiminu. Mjög skemmtilegt! (þrátt fyrir að myndavélin hafi frosið stundum :)

Hlakka til að sjá ykkur öll þegar heim er komið - adios!

Wednesday, December 29, 2010

Jólin, jólin, allsstaðar

Nú er fimmti í jólum hér í Kanada og viðburðarríkir dagar að baki. Hef átt yndisleg jól í faðmi kanadískra vina og satt best að segja aldrei farið í eins mörg jólaboð!

Á aðfangadagskvöld fórum við Faith í jólamessu í kirkjuna okkar (Augustana) kl. 18 og héldum svo til Kevins (skólastjóra skólans) í jólamáltíð. Kalkúnninn var á borðum ásamt fleira góðgæti og auðvitað var kona alveg pakksödd eftir ósköpin. Síðan settumst við niður og opnuðum nokkra pakka - Kevin er af norskum ættum og því kunnugur siðum okkar Norðurlandabúa. Fékk óvæntar gjafir úr öllum áttum og hálf skammaðist mín að hafa ekki komið með fleiri gjafir sjálf til viðstaddra! Síðan var haldið í miðnæturmessu í Resurrection Lutheran Church til séra Ali Tote. Hann er frá Kamerún en hefur búið í Kanada um nokkurt skeið. Yndislegur prestur, mjög líflegur og beinskeittur í tali og tónum. Ég spilaði undir sálmasönginn og í nokkrum söngvunum spilaði Ali með á bongótrommur! Virkilega skemmtilegt :)

Á jóladag var haldið í messu árla morguns í kirkjuna okkar, síðan farið í jólaboð til Jann (kennara í skólanum), og síðan í jólaboð til Barböru og Martins (Barbara er skólasystir). Magavöðvarnir fengu góða æfingu þennan dag! Í seinna jólaboðinu spiluðum við fram eftir kvöldi, alveg eins og heima - aldeilis var ég sátt við það!

Annan dag jóla spilaði ég við messu í Resurrection kirkjunni, síðan fór ég í mat hjá séra David og Margret konu hans (prestshjón Augustana safnaðarins) og síðan fór ég í jólaboð til Ana og Jonathan (Ana er dóttir Jann, kennara í skólanum). Komst að því að Jonathan er mikill aðdáandi Íslendingasagna og á 10 þeirra í enskri þýðingu! Uppáhaldsbókin hans er Völsungasaga og síðan Grettissaga. Pabbi verður nú ánægður að heyra þetta! :)

Þriðja dag jóla fór ég aftur í boð til Barböru og Martins - systir Barböru og fjölskylda hennar voru líka á staðnum og við tókum aftur í spil eftir máltíðina. Fjórða dag jóla fór ég svo í bíó með Faith, Zhófi og Paul (Zhófi er skólasystir, Paul er vinur hennar) á myndina King's Speech - alveg stórskemmtileg mynd! Fimmta dag jóla, í dag sem sagt, fórum við Faith í langan göngutúr meðfram ánni í aðeins 19 stiga frosti - yndislegt! Kíktum á safn hér í borg og fengum okkur heitan súkkulaðisopa. Og núna er ég sem sagt á leiðinni í enn eitt boðið: Séra Ali Toti og frú Dominique hafa boðið okkur í kvöldmáltíð hjá sér. Á morgun verður svo hádegisverður snæddur með vinkonu Faith, við ætlum að heimsækja fleiri söfn seinnipartinn og þann 1. janúar förum við svo í nýársboð til Söruh skólasystur og fjölskyldu hennar.

Nokkuð ljóst má vera að klerkur hefur verið afar upptekinn undanfarna daga og verður áframhaldandi þar til haldið verður heim á leið næsta mánudag. En svona eiga jólin að vera - fögnuður í faðmi nýfengra vina í notalegu umhverfi. Í huga mér hljóma fjögur orð hátt og snjallt sem svar við þessu upplifelsi: Kærar þakkir fyrir mig!

Thursday, December 23, 2010

Jólakveðja yfir hafið

Kæru vinir og vinkonur, frændur og frænkur, systkini og foreldrar. Gleðileg jól! Ég óska ykkur öllum gleðilegra og blessunarríkra jóla og vona að þið fáið notið þess besta sem boðskapur þeirra býður upp á: Hlýju, kærleika, friðar, vonar og trúar. Sjálf er ég við það að upplifa mín fyrstu jól á erlendri grundu, mín fyrstu jól fjarri fjölskyldu minni, mín fyrstu jól með nýju fólki á nýjum stað. Þrátt fyrir það þá leggjast jólin vel í mig. Ég sakna þess að vera ekki heima, en ég fagna nýrri reynslu og nýjum upplifunum. Ég bjóst við að vera einungis þiggjandi þessi jólin hvað varðar helgihald kirkjunnar en því fer fjarri. Ég mun taka þátt í lestri ritningargreina og bæna við jólamessu kl. 18 í Augustana Lutheran Church á aðfangadagskvöld og svo verð ég undirleikari við messu kl. 23 í Resurrection Lutheran Church sama kvöld (einnig þann 26. des. kl. 10). Það verður því aldeilis nóg að gera. Mér er boðið í 4 jólaboð yfir hátíðarnar svo ekki verður einsemdinni fyrir að fara. Ég get því með sanni sagt að ég hlakka til jólanna!

Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól, gott fólk. Og drífið ykkur endilega í kirkju yfir hátíðirnar - það jafnast ekkert á við það á jólum! :)

Tuesday, December 14, 2010

Á kafi

Það fór nú aldrei svo að kona lenti ekki í ævintýrum í desember. Að vísu er ekki um ástarævintýri að ræða, föður mínum væntanlega til mikilla vonbrigða, en ævintýri var það samt.

Eftir dágóðan hjólatúr í gær um Svakatúni í snjókomu, -10 gráðum og örlítilli gjólu, stökk stelpan í sturtu og ákvað svo að þrífa loksins herbergin tvö. Þar sem hún þjösnaðist á ryksugunni (sem er því miður ekki sú kraftmesta í heimi - suss Sigga og Rúnar, engar dóna hugsanir!!) birtist Faith allt í einu og sagði: Íris, we've got a problem. Og það var dagsatt hjá henni. Eitthvað hafði niðurfallið úr húsinu bilað í blessuðu húsinu og kyndiklefaherbergið var fullt af vatni - slatti rann líka undir teppið fram á gangi. Til allra hamingju höfðum við stöllurnar ekki staðið í stórræðum á klósettinu þarna á undan, en ég hafði notað sturtuna og Faith þvottavélina. Vatnið sem vall þarna upp úr niðurfallinu var því bara nokkuð hreint, miðað við aðstæður. Við brettum upp ermarnar, fórum í vöðlurnar og "mokuðum" upp vatninu í klefanum, ryksuguðum upp mestu af vatninu í teppinu á ganginum og gerðum það sem við gátum til að hindra skemmdir. Okkur sýnist að það hafi tekist ágætlega. Faith hringdi í skólpkarlana, þeir gátu ekki komið strax um kvöldið en þeir voru mættir stundvíslega kl. 8.15 í morgun. Allt í gúddí núna, engir pollar, bara svolítið blautt teppi.

Í dag fékk ég síðan skemmtilegan tölvupóst. Ein lúthersk kirkja hér í Svakatúni bráðvantaði undirleikara við sálmasönginn síðla á aðfangadagskvöld og árla morguns á annan dag jóla. Ég bauðst til að redda þeim, blessuðum, með forláta undirspili á píanó, þó með þeim yfirlýsingum að ég væri alls enginn prófessíonal, bara fúskari. Hef samt svolitla æfingu í þessu því ég er búin að spila í nokkrum messum í kapellu skólans með sæmilegum árangri. En þeim er víst alveg sama þó ég sé fúskari, þökkuðu mér í bak og fyrir, því þeim finnst nú betra að hafa einhvern undirleik frekar en engan. Ég verð því að vinna þessi jól, við tvær guðsþjónustur - ekki sem prestur heldur sem undirleikari! Hver hefði trúað þessu??? Og ég sem ætlaði að slappa af þessi jól! Svona er þetta, alltaf kemur kona sér í alls kyns vandræði - en þessi vandræði eru þó gleðileg :)

Sem sagt, nóg við að vera þessar síðustu vikur í Kanada. Ætli ég verði ekki búin á því þegar ég kem heim???

Saturday, December 11, 2010

Fröken Desember

Það er kominn desember. Ég hef nú verið í Kanada í rúma þrjá mánuði og á þrjár vikur eftir af dvölinni. Vildi óska að ég gæti verið hér lengur. En, eins og konan sagði: Þú færð ekki allt sem þú vilt í þessu lífi. Þá er bara að njóta þess sem eftir er í botn. Mér verður nú ekki skotaskuld úr því, búin að skila öllum verkefnum í skólanum og bara rólegheit framundan. Hvílíkur munur á fröken Desember núna og undanfarin ár!

Kötturinn og fiskarnir voru í gæslu hjá mér þessa vikuna í fjarveru húsmóðurinnar. Kisi er orðinn ansi ágengur, það er ekkert hægt að gera í friði lengur, hvorki vinna í tölvu, sofa eða eta - alls staðar birtist blessaður Chango. En ég verð nú að segja að ég nýt athyglinnar - það er gott að knúsa kisa á köldum vetrardögum. Talandi um kulda þá er búið að vera nokkuð kalt upp á síðkastið. Nasahárin frjósa stöðugt þegar ég fer út - afskaplega óþægilegt fyrirbrigði! Fyrir þau sem vilja fylgjast með veðri hér í Svakatúni þá er þetta slóðin á veðurfréttastofuna: http://www.theweathernetwork.com/weather/cask0276

Á fimmtudaginn héldu stúdentar, kennarar og starfsfólk skólans jólateiti. Löng hefð er fyrir slíku. Ég sat í undirbúningsnefndinni sem innkaupastjóri og ræstitæknir. Partýið var frábært! Skemmtiatriðin meiriháttar bæði hjá stúdentum og kennurum. Ég læt fylgja með videóupptöku af einum hluta skemmtiatriðis frá annars árs nemum: http://www.youtube.com/watch?v=84gN3FgWy_o

Í dag fékk ég óvænta hringingu frá ættingjum hér í Kanada. Þegar ma og pa fóru í ferð á Íslendingaslóðir í sumar þá fengu þau upplýsingar um ættingja sína hér í landi, afkomendur Kanadafara frá því fyrir aldamótin 1900. Þau hittu einn frænda pabba á Íslendingadeginum í Gimli og hafa verið að hvetja mig til að hafa samband við fleiri ættingja á meðan ég dvel hér. Ég er auðvitað alger aumingi í svona málum, ekki einu sinni búin að hringja í þau sem þó búa hér nálægt. Um daginn fékk ég tölvupóst frá fjölskyldumeðlimi og ég gaf henni númerið mitt svo hægt væri að hafa samband. Og auðvitað klikkuð þau ekki á smáatriðunum, eins og íslenska frænkan. Mary Hallgrimson hringdi í dag, sagðist vera stödd hér í borg ásamt Norman, eiginmanni sínum (Norm frænda) og spurði hvort þau gætu ekki hitt mig eftir klukkutíma. Að sjálfsögðu! var svarið - síðan var þotið í sturtu, íslenska Síríus súkkulaði tekið fram og þau boðin velkomin á heimilið ásamt Michael syni þeirra. Þetta var sannarlega óvænt og skemmtileg heimsókn. Ég á í vændum að hitta þau aftur yfir jólin, þá fer ég í jólaboð til Michael og konu hans, Norm og Mary verða þar einnig. Jæja, ma og pa - nú ættuð þið að vera ánægð með litlu stelpuna ykkar! :)

Annars er ég ósköp sæl og glöð yfir að eiga núna tíma fyrir sjálfa mig í rólegheitum áður en ég kem heim í ys, þys og læti. Ætla að njóta jólanna í kirkjum bæjarins og í jólaboðum víðsvegar. Dásamleg tilbreyting :)