Nú skrifar maður bara blogg á hverju kvöldi! Allt gert til að þurfa ekki að halda áfram að semja prédikun - hehe :)
Má til með að segja frá aðventustundinni sem ég fór á í kvöld. Þar hittust konur í St. Timothy Anglican Church og Augustana Lutheran Church, snæddu saman kjúklingakvöldverð, sungu jólasöngva, hlýddu á jólasögur og skiptust á gjöfum. Ég mætti á staðinn með Faith og Heather (vinkonu Faith) og lækkaði líklega meðalaldurinn um 50% við komuna. En mikið var þetta nú yndisleg kvöldstund! Svipuð því sem maður á að venjast á aðventustundum kvenfélaga heima á Fróni, nema nú var ég ekki gesturinn sem flutti hugvekjuna :) Við mættum kl. 18 og öllu var lokið rétt fyrir kl. 21. Svona á þetta að vera! Ætla svo að mæta á kökubasarinn hjá kerlunum næstu helgi - maður verður nú að stimpla sig rækilega inn í samfélag eldri kvenna hér í Svakatúni!
Gleymdi að segja ykkur í fyrri bloggum að ég hef 3svar farið í leikhús síðan ég kom. Fyrir um mánuði síðan sá ég leikritið Harvest sem sýnt var á vegum Persephone leikfélagsins hér í borg. Mjög frumlegt og skemmtilegt leikrit, byggt á sönnum atburðum sem gerðust í Kanada. Það fjallar um hjón sem ákveða að flytja úr sveitinni og í borgina, þau leigja sveitabæinn sinn afar viðkunnarlegum náunga sem tekur upp á þeirri iðju að framleiða marihuana. Fyndinn og kaldhæðinn tvíleikur. Síðan fór ég á leikrit á vegum stúdentaleikhúss háskólans, þau settu upp Pride and Prejudice - mjög áhugavert. Og að lokum sá ég Robin Hood í uppfærslu Persephone leikfélagsins. Svolítið sérstök uppfærsla, en ágætis skemmtun.
Maður er því bara á kafi í menningunni hérna megin. Hef farið oftar í leikhús á þremur mánuðum í Kanada en á þremur árum á Íslandi! Aldrei að vita nema leikhúsferðirnar verði fleiri þegar til Ísalandsins er komið. Og framundan? Tónleikar og fleiri aðventukvöld. Dásamlegt!
No comments:
Post a Comment