Sunday, November 28, 2010

Allir á völlinn!

Ég er dottin í kanadíska íþróttadellu. Það gerðist nú í vikunni, mjög skyndilega. Ástæðan er einföld: Heimamenn í kanadískum fótbolta, Saskatchewan Roughriders, komust í úrslit í bikarkeppninni, Grey Cup, og úrslitaleikurinn fór fram í dag. Andstæðingurinn var Montreal Alouettes en þessi lið mættust einnig í úrslitum í fyrra. Þá unnu fransararnir naumlega. Þessa vikuna hefur gjörsamlega allt verið undirlagt í Svakatúni vegna leiksins. Grænir litir liðsins sáust hvarvetna, fánar á bílum og húsum, fólk í grænum bolum, meira að segja í kirkju í morgun! Þegar leikurinn hófst kl. 17.30 að staðartíma sást varla hræða á ferli í borginni. Til allrar óhamingju töpuðum við leiknum, aftur naumlega. Það verður dapurlegt að mæta í skólann í fyrramálið - svartur verður líklega aðventuliturinn í nokkra daga.

Alveg er það merkilegt hvað maður dregst auðveldlega inn í hringiðu hefða og venja í nýjum heimahögum. Það er bara eins og maður hafi búið hér í mörg ár! Ég gerði mér satt best að segja ekki grein fyrir hvernig nýjir íverustaðir ná tökum á manni, hafandi enga reynslu í þeim efnum. Er alveg viss um að ég á eftir að halda með Roughriders í framtíðinni, jafnvel þó ég eigi aldrei eftir að koma hingað aftur!

Fótbolti er nú ekki eina sportið hér í Kanada - þjóðaríþróttin er auðvitað hokkí. Ég fór á leik um daginn, í háskólanum fer fram keppni á milli deilda og guðfræðigengið er með eitt lið. Ég sá þá spila en því miður töpuðu þeir fyrir tæknifræðinemunum. Týpískt! Heimurinn í hnotskurn, guðfræði á undanhaldi en tæknin í framför!

Hver veit nema fleiri tækifæri gefist til íþróttaleikja nú í desember. Annars hef ég hugsað mér að skreppa á nokkra aðventutónleika og aðra aðventuviðburði í kirkjum - Messías verður fluttur með pompi og prakt í næstu viku, hver veit nema ég skelli mér ef ritgerðarsmíð hamlar ekki för. Nú er algerlega tíminn til að anda að sér aðventunni - að þessu sinni án hefðbundinna aðventuverkefna. Enn hvað það verður góð tilbreyting :)

No comments:

Post a Comment