Áður en ég kom til Kanada hafði ég hugsað mér að leigja mér mótorhjól einhverja daga og krúsa aðeins um svæðið hér í kring. Með fullri virðingu fyrir fjölskyldu og vinum þá sakna ég eiginlega mest mótorhjólsins míns rauða frá Íslandi! Á góðviðrisdögum krúsa mótorhjólakapparnir hér í Saskatoon (ég hef enn ekki séð konu á hjóli!), í gallabuxunum sínum og strigaskónum, leðurjökkunum og með opnu hjálmana. Ég tek út fyrir það að heyra og sjá þá fara framhjá, mig langar svo að fara að hjóla! Kannski er þetta líka tengt því að ég keyri yfir höfuð ekkert hér í bæ, og það þýðir að ferðir mínar eru mjög takmarkaðar. Ég get ekki farið í langar skoðunarferðir eða þess háttar og það skerðir til muna ferðafrelsið - samt hefur það nú alveg komið fyrir að ég hjóla yfir 10 km á dag en það er bara á reiðhjóli, og að sjálfsögðu innanbæjar :)
Í vikunni kíkti ég einu sinni sem oftar á veðurspána fyrir Sasakatoon og viti menn! Spáin fyrir helgina er hreint út sagt frábær! Um 20 stiga hiti, bongó haustveður! Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og ákvað að hafa upp á mótorhjólaleigum í nágrenninu. Vikan var nokkuð strembin svo ég kom mér ekki að því fyrr en í dag, föstudag. Þá hringdi ég í Harley-Davidson mótorhjólabúð í miðbænum og spurði hvort þeir leigðu nokkuð út mótorhjól hér á staðnum. Nathan nokkur varð fyrir svörum og hann svaraði rólega: - Nei, þú verður að fara til Alberta til að fá leigt hjól. - Ég hugsaði: Ha??? Næsta fylki??? Svo ég spurði ofur varlega: - Áttu við að það séu engar mótorhjólaleigur hér í Saskatoon? - Og þá kom dómsdagssvarið: - Nei, ekki í öllu Saskatchewan fylki. Reglugerðir í fylkinu banna það. Þú verður að fara til Alberta. -
Mér varð allri lokið! Engar mótorhjólaleigur nálægt, ekki einu sinni hægt að leigja sér Scooter skellinöðru! Ég fór aftur á netið og sá að ef maður leitar að leigu þá koma nokkrar upp en það er víst eitthvað bull - fann þá þessa síðu: http://www.ridetheworld.com/canadamotorcyclerentalandtouring.html þar sem fram koma upplýsingar um fjölda mótorhjólaleiga í Kanada - og fjöldinn í Saskatchewan: Núll, zero, zilch, blanko, nada!
Sit því hér og harma ógæfu mína í hljóði. Mótorhjólaævintýri í Kanada verður augljóslega að bíða betri tíma. Draumurinn hefur kannski ekki snúist upp í martröð, það er of sterkt til orða tekið, en honum hefur í það minnsta verið frestað um óákveðinn tíma. Því það er meira en að segja það að fara til Alberta og finna leigu, það er of mikil fyrirhöfn fyrir tveggja daga túr. En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott - hef ákveðið að fara í langan hjólatúr á morgun, skoða borgina með augum reiðhjólakonunnar, ekki mótorhjólakonunnar og kanna landsins gagn og nauðsynjar á heilsusamlegan máta. Hver veit nema ég kíki við í Harley Davidson búðina niður í bæ, tjatti aðeins við Nathan karlinn og kanni hvort hann geti ekki gert eitthvað fyrir mig, aumingja Íslendinginn sem haldinn er krónískum fráhvarfseinkennum vegna mótorhjólaþurrðar. Hver veit, ég gæti kannski fengið að prófa einn nýjan Harley svona for the fun of it!
Æji en ömurlegt, en þú finnur út úr þessu þar sem þú hreinlega verður að prófa að hjóla í Svakatúni ;-)
ReplyDeleteJá gott nafn Svakatún! Eitthvað cartoon-legt við þetta bæjarnafn! Gaman að sjá þetta;) Njóttu þess að vera í landi kossanna! Eða bara Herseys!
ReplyDeleteNú líst mér á þig, kæra vinkona. En gættu þín á því að eftir að þú hefur ekið alvöru Harley - "there is no turning back" :)
ReplyDelete