Nú er heitt í Svakatúni. 25 stiga hiti um helgina, 22 stiga hiti í dag (mánudag) og ekki undir 17 gráðum yfir daginn alla vikuna fram á sunnudag, samkvæmt spánni! Jæja, það fór aldrei svo að ég fékk ekki smjörþef af Kanadísku sumri. Greyin litlu áttu reyndar skilið að fá sól að hausti því hér rigndi víst stanslaust í sumar. Íslendingurinn nýtur þess líka, en 25 gráður er í það mesta fyrir mig, 15-20 er fínt!
Fór sem sagt út í garð að læra í sólskini gærdagsins. Þurfti nefnilega að semja tvær prédikanir til flutnings nú í vikunni. Tókst að sletta þeim fram úr erminni en engum sögum fer af árangri strax, það kemur í ljós á þriðjudag og fimmtudag. Uppgötvaði mér til sárra vonbrigða að það sem helst hamlar mér við gerð prédikunar á ensku er orðaforði. Ég hef ágætis samræðu orðaforða en lítinn fræðilegan orðaforða. Kannski er það bara í lagi, þá verð ég að minnsta kosti ekki háfleyg í flutningi! En hefði þó samt vilja vera aðeins "fullorðinslegri", ekki bara uppfull af táningafrösum sem áunnist hafa af of miklu sjónvarps- og kvikmyndaáhorfi!
En það þýðir víst ekkert að tauta yfir því - þetta kemur vonandi allt með reynslunni. Annars fæ ég hér mikla reynslu af helgihaldi. Á hverjum degi í skólanum er helgistund í kapellunni, með altarisgöngu tvisvar í viku. Og ég fæ að prófa nú í vetur öll hlutverkin sem í boði eru í einni messu! Haldiði að það sé nú! Eftir fjóra mánuði verð ég útskrifuð í kanadísk-lútherskum helgisiðum messunnar og get sótt um hvaða starf sem er hérna. Ætli það sé framtíðin? Hehe.
OMG! Dugar það ekki eitt og sér? ;o)
ReplyDeleteEr framtíðin að krúsa Kanada með þér? Hmmmmm
Gaman að lesa bloggið þitt Íris! Það ríkir mikil gleði í KSF núna. Við erum búin að hafa tvo fundi og mættu 23 á fyrri fundinn og 30 í gærkvöldi! :)
ReplyDeleteHafðu það gott!