Sunday, September 12, 2010

Fyrsta vika í útlandinu

Jæja kæru vinir, fjölskylda, kollegar og annað gott fólk sem skilur íslensku!

Þá er maður kominn alla leið til Saskatoon í Kanada sem við fyrstu kynni er alveg einstaklega fallegur bær þó flatur sé! Það fyrsta sem ég tók eftir svona rétt fyrir lendingu við komuna hingað var að hér sjást engin fjöll í órafjarlægð - bara sléttur og engi, tún og akrar svo langt sem augað eygir - alveg einstaklega skrítið en samt sjarmerandi. Og maður spyr sig auðvitað: Hvað er ég eiginlega að gera hér??!!

Þessi spurning hefur hljómað víða síðustu vikurnar, bæði heima og í Kanada - hvernig datt þér þetta eiginlega í hug? Svarið er auðvitað einfalt, a.m.k. fyrir þau sem mig þekkja, kannski ekki aðra. Ég vildi fara á stað sem fáir höfðu heyrt um, einhvers staðar lengst í burtu fjarri frá öllu því sem ég hef hingað til þekkt og skilið. Ég leitaði uppi Lútherskar guðfræðideildir í henni Ameríku og fann nokkrar, en enga svona norðarlega eins og Saskatoon - og þess vegna valdi ég þennan stað! Einfalt og gott. Ég var svo heppin að komast strax í samband við skólann, fá inngöngu, fá samastað og svo að sjálfsögðu leyfið frá kirkjunni minni - og árangurinn er þessi. Ég ætla að segja ykkur örlítið frá því sem drifið hefur á daga mína að undanförnu til að gefa ykkur innsýn í lífið hér á sléttunum.

Ég bý hjá dr. Faith Rohrbough sem er fyrrum forseti skólans sem ég stunda nám við. Faith er yndisleg kona, hún sótti mig á flugvöllinn og hefur farið með mig víða um borgina. Ég er svo heppin að hafa til umráða hjá henni tvö herbergi, stofu og svefnherbergi, sér baðherbergi og alles. Chango er kötturinn hennar, það tók hann nokkra daga að taka mig í sátt en við erum orðnir ágætis vinir núna. Þetta fallega hús á sléttunni er rétt hjá háskólahverfinu, það tekur mig aðeins um 15 mín. að ganga í skólann - perfecto!

Skólinn heitir Lutheran Theological Seminary, Saskatoon. Þetta er pínulítill skóli með fáum nemendum, alveg eins og best verður á kosið :) Síðasta vika var svokölluð Orientation Week þar sem við fengum nóg tækifæri til að kynnast hvert öðru og starfsfólkinu, kennurunum - við hittumst á fundum og samkundum, fórum í ferð í nokkurs konar sumarbúðir yfir nótt, yndislega fallegan stað sem heitir Shekinah - svo það var nóg að gera. Það sem mér fannst sérstakt við þetta voru nánu samskiptin sem kennararnir áttu við nemendurnar - því hef ég ekki kynnst áður. Kennsla hefst svo á mánudag og ég hef hugsað mér að sitja nokkra kúrsa í prédikunarfræðum, Lúthersfræðum og Gamla testamentisfræðum. Hlakka til að prédika á ensku!

Nú þar sem maður hefur engan bíl til umráða þá fer ég allar mínar ferðir fótgangandi. Vonast þó til að fá hjól til afnota á næstu dögum sem ég get notað þar til snjóa tekur. Faith hin yndislega ætlar að redda mér hjóli :) Þetta þýðir auðvitað að það verður mikið um hreyfingu hérna megin - á þessari einu viku hef ég gengið meira og hreyft mig meira en á heilu ári á Íslandi - úpsídúpsí! En gerið ykkur samt engar væntingar um að ég komi þvengmjó tilbaka - maður er nú einu sinni í henni Ameríku með milljón skrilljón matar- og nammifreistingar á hverju strái!!

Og þá er það veðrið. Sunnan fjórir, skýjað og mígandi rigning að mestu. Já, það hefur rignt mikið hér síðustu vikuna, rétt eins og á Íslandi, eftir því sem ég las og heyrði. En í gær, laugardag, og í dag, sunnudag, var mjög gott veður - enda gekk ég af mér iljarnar í verslunarferðum "downtown", þurfti nefnilega að kaupa landsins gagn og nauðsynjar, eins og t.d. flíssokka fyrir kaldar nætur, og langt skóhorn fyrir djúpa skó. Það er þó nokkuð sérstakt að ganga hér um strætin, sumstaðar eru göngustígar, sumstaðar ekki, sumstaðar er enn möl á bílastæðum, ómalbikað, en víðast hvar er allt hreint og fallegt - og svo er auðvitað allt rennislétt hér - ég hlakka til að fara að reiðhjólast!!

Það sem gerir mig hvað pirraðasta enn sem komið er, eru mótorhjólin hér í bæ. Í góða veðrinu krúsa karlarnir hér á mótorhjólunum sínum, í gallabuxum og leðurjakka, með opinn hjálm - bæði á Hondum og Yamaha hjólum en þó mest megnis á Harley-um - og í hvert skipti sem ég heyri eða sé mótorhjól fara framhjá þá blóta ég í barminn (ussssss), sársvekkt yfir að komast ekki út að hjóla! Ég get fengið hjól leigt hér en það hefur bara ekki unnist tími enn til að kanna þau mál - vonandi get ég eitthvað mótorhjólast áður en ég fer. Og vitiði hvað! Ég sá alveg eins hjól og ég á í dag þegar ég var á gangi! Það var reyndar útúrtroðið af aukahlutum en alveg eins og mitt! Og að sjálfsögðu var ég ekki með myndavélina með mér til að festa gripinn á mynd - darn!!

Þetta eru búnir að vera frábærir dagar. Ég hef kynnst fullt af fólki, það er mjög auðvelt - ég hef ekki undan að taka við heimboðum til hinna og þessa. Ég fer á sunnudögum í Lútherska kirkju sem heitir Augustana Evangelical Lutheran Church, mér líst vel á fólkið allt í kirkjunni og hef hugsað mér að sækja þessa kirkju í vetur. Gaman að sitja á kirkjubekk og vera þiggjandi :)

Er komin með síma núna - lenti í vandræðum því ég get ekki notað símann minn hér - þ.e. ég get ekki keypt og notað nýtt sim-kort til að setja í símann minn, það virkar ekki. Svo ég keypti ódýran síma sem ég ætla að nota hér - en þið megið ekki hringja í mig, það kostar of mikið fyrir mig! Best að senda mér bara tölvupóst :)

Já, það er sem sagt allt gott að frétta! Hef hitt þó nokkra sem eiga ættir að rekja til Íslands - það er svona að vera í Lúthersku samfélagi, ekkert nema Skandinavar og Germanir! Einn nemandi við skólann heitir Terry Gudmundson, hann á íslenska ömmu og afa, langömmu og langafa, og kann fullt af íslenskum orðum; sagði meira að segja við mig í vikunni: Could you pass me the blýantur! Ég sprakk úr hlátri og hrósaði honum mjög fyrir flottan framburð!

Nú er nóg komið í bili en ég hef hugsað mér að blogga um dvölina hér hvenær sem ég hef tíma og nennu til. Fylgist með :)

5 comments:

  1. Gaman að þessu. Vertu endilega dugleg að skrifa og taka myndir. Ég var að spá í hvaða krummaskuð þú værir komin í enda upprunalega frá stórborginni Keflavík en sá að þarna búa rúmlega 220 þús! http://en.wikipedia.org/wiki/Saskatoon
    Ég "labbaði" aðeins um bæinn með hjálp frá google maps. Þetta er flottur bær. Hafðu það sem allra best þarna. Billiardmót bíður þín þegar þú kemur heim.
    Mótorhjólakveðja
    Rúnar I. Hannah

    ReplyDelete
  2. Til hamingju með að vera orðinn bloggari Íris :)

    Hlakka til að heyra meira frá Saskatoon sem mér finnst minna meira á bæjarnafn í SuðurAfríku en í Kanada.

    Gangi þér vel
    Kv. Guðbjörg Lilja .c)

    ReplyDelete
  3. Gaman að heyra frá þér Íris, þú ert stórskemmtilegur bloggari! :)

    Hafðu það gott og endilega hjólaðu mikið á reiðhjólinu, það er svo æðislega skemmtilegt!
    Gangi þér allt í haginn!

    Kveðja, Lára Halla.

    ReplyDelete
  4. Frábært að geta fylgst með þér hér ;-)

    kveðja Brynja

    ReplyDelete
  5. Þú ert yndisleg, njóttu dvalarinnar í botn :)

    kv, Kolla

    ReplyDelete