Veðrið. Af hverju hefur manneskjan svona mikla þörf fyrir að tala um veðrið? Ég held að það sé vegna þess að veðrið hefur áhrif á andlegt ástand og hugarfar og hvort sem okkur líkar vel eða ekki við kulda eða hita þá spilar hvort tveggja stóra rullu í lífi okkar. Í dag er ágætis veður í Svakatúni. Ég heyri hins vegar fréttir af snjókomu og stormum á Fróni. Svona er lífið - heitt eða kalt. Ég bíð enn eftir hinu mikla frosti sem einkennir kanadíska veturinn. Fæ þó líklega aðeins að upplifa helming af því sem til kulda telst því mestur er hann fyrstu tvo mánuði ársins.
Eitt er það sem hefur angrað mig þó nokkuð og það er hversu kalt er á heimilinu hér við Osler stræti í samanburði við afdrepið í Akurhvarfinu. Meðalhiti innanhúss er 18-19 gráður. Ég er vön 20-22 gráðum. Trúið mér, það munar um hverja gráðu! Á hverju kvöldi fer ég að sofa með hroll í kroppinum. Ég sef með þunnt lak yfir mér, tvö ullarteppi og eitt rúmteppi. Heavy duty stuff! Er klædd í náttföt og hlýja sokka og auk þess eru flíspeysan og flís vettlingarnir nærri - þeir síðarnefndu voru notaðir í nótt. Hér er nefnilega mikill munur á hitastigi dags og nætur - á daginn getur hitinn farið í 14 gráður um þessar mundir en niður í -5 gráður á næturnar. Veðurfarslegt rokk og ról :)
Ég hef því þurft að endurnýja birgðir af hlýjum sokkum, höfuðfati og bolum. Hef enn ekki látið verða af því að kaupa flís-náttfötin því ég er viss um að ég á aldrei eftir að nota þau þegar ég kem heim! En óska þess þó að eiga þau að hér í Svakatúni. Svo á kanadíska gæsadúnsúlpan eftir að koma sér vel þegar kólnar, hún hangir þó enn í fataskápnum, blessunin.
Öllu er þó hægt að venjast. Nú er mér nokk sama þó ég skrölti af kulda á kvöldin - ég bæti bara á mig fötum. Svo er líka svolítið hressandi að sofna með rautt og kalt nef - svo lengi sem það lekur ekki úr því! Ég og kuldaboli erum því orðnir ágætis vinir, þrátt fyrir að hann hegði sér öðruvísi en frændi hans á Fróni. Alltaf gaman að eignast nýja vini, ekki satt?
Hádí Íris!
ReplyDeletevildi bara senda þér kveðju úr húshitanum í Kópavogi. Mér sýnist smá næturkuldi ekki neitt miðað við ævintýrin þín í Svakatúni (mæli með heitu fótabaði fyrir háttinn). Gaman að lesa pistlana þína!
Gangi þér vel!
Kveðjur
Bjarney