Friday, October 8, 2010

Með bros á vör og verk í rófubeini

Enn skín sólin í Saskatoon, 24 stiga hiti í dag! Helgin verður dásamleg veðurfarslega séð svo ég ætla að nota tækifærið og sleikja aðeins sólina áður en hún hættir þessari góðvild sinni í garð Kanadabúa. Annars er þakkargjörðarhelgi núna, þakkargjörðardagurinn hjá Kanadabúum er annan mánudag í október, svolítið ólíkt siðum þeirra syðra í US of A. Á morgun förum við Faith á safn hér rétt utan við Saskatoon þar sem saga indíána (kallaðir First Nations) er rakin. Á sunnudag mun ég svo prédika í Augustana kirkju, þeirri sömu og ég hef sótt hvern sunnudag síðan ég kom, og á mánudag er ég boðin í þakkargjörðarmáltíð til Barböru og Martins, en Barbara er skólasystir mín. Skemmtileg helgi framundan!

Það er búið að vera nóg að gera við lærdóminn. Síðasta helgi var lærdómshelgi, ég sat á bossanum alla helgina og skrifaði ritgerð, saup svo seiðið af því á mánudag, alveg að drepast í rófubeininu! Skrifborðsstóllinn á heimilinu er ekki sá besti í heimi, a.m.k. ekki gerður fyrir 7 tíma stanslausa setu, tvo daga í röð! Passa mig á að gera þetta ekki aftur í nánustu framtíð. Þarf þó að hella mér í alls konar áhugaverð verkefni á næstu dögum sem eiga eftir að taka sinn tíma. En ég hlakka til - svei mér þá, það er alveg sama hvaða verkefni bíða, mér finnst þau öll áhugaverð og skemmtileg! Um daginn spurði Barbara mig hvernig mér fannst einhver ákveðinn tími í prédikunarfræðum og ég sagði auðvitað: Very interesting and so much fun! Og hún sagði: Oh, Íris, you like everything! Ég hló bara, því hún hafði auðvitað alveg rétt fyrir sér - mér finnst allt hér skemmtilegt :)

Dagarnir líða hratt, rútína er komin á dagsverkin og á hverjum degi bíða einhver verkefni. Ég elska kvöldin hér - þeim eyði ég heima í stofu, sit og les bók eða horfi á mynd/þátt í tölvunni eða sit við prédikanagerð. Umfram allt, rólegheit í hæsta gæðaflokki. Svona eiga námsleyfi að vera!

1 comment:

  1. Gott að heyra að vel gengur kæra vinkona, njóttu vel :)

    kv, Kolla

    ReplyDelete