Það fór nú aldrei svo að kona lenti ekki í ævintýrum í desember. Að vísu er ekki um ástarævintýri að ræða, föður mínum væntanlega til mikilla vonbrigða, en ævintýri var það samt.
Eftir dágóðan hjólatúr í gær um Svakatúni í snjókomu, -10 gráðum og örlítilli gjólu, stökk stelpan í sturtu og ákvað svo að þrífa loksins herbergin tvö. Þar sem hún þjösnaðist á ryksugunni (sem er því miður ekki sú kraftmesta í heimi - suss Sigga og Rúnar, engar dóna hugsanir!!) birtist Faith allt í einu og sagði: Íris, we've got a problem. Og það var dagsatt hjá henni. Eitthvað hafði niðurfallið úr húsinu bilað í blessuðu húsinu og kyndiklefaherbergið var fullt af vatni - slatti rann líka undir teppið fram á gangi. Til allra hamingju höfðum við stöllurnar ekki staðið í stórræðum á klósettinu þarna á undan, en ég hafði notað sturtuna og Faith þvottavélina. Vatnið sem vall þarna upp úr niðurfallinu var því bara nokkuð hreint, miðað við aðstæður. Við brettum upp ermarnar, fórum í vöðlurnar og "mokuðum" upp vatninu í klefanum, ryksuguðum upp mestu af vatninu í teppinu á ganginum og gerðum það sem við gátum til að hindra skemmdir. Okkur sýnist að það hafi tekist ágætlega. Faith hringdi í skólpkarlana, þeir gátu ekki komið strax um kvöldið en þeir voru mættir stundvíslega kl. 8.15 í morgun. Allt í gúddí núna, engir pollar, bara svolítið blautt teppi.
Í dag fékk ég síðan skemmtilegan tölvupóst. Ein lúthersk kirkja hér í Svakatúni bráðvantaði undirleikara við sálmasönginn síðla á aðfangadagskvöld og árla morguns á annan dag jóla. Ég bauðst til að redda þeim, blessuðum, með forláta undirspili á píanó, þó með þeim yfirlýsingum að ég væri alls enginn prófessíonal, bara fúskari. Hef samt svolitla æfingu í þessu því ég er búin að spila í nokkrum messum í kapellu skólans með sæmilegum árangri. En þeim er víst alveg sama þó ég sé fúskari, þökkuðu mér í bak og fyrir, því þeim finnst nú betra að hafa einhvern undirleik frekar en engan. Ég verð því að vinna þessi jól, við tvær guðsþjónustur - ekki sem prestur heldur sem undirleikari! Hver hefði trúað þessu??? Og ég sem ætlaði að slappa af þessi jól! Svona er þetta, alltaf kemur kona sér í alls kyns vandræði - en þessi vandræði eru þó gleðileg :)
Sem sagt, nóg við að vera þessar síðustu vikur í Kanada. Ætli ég verði ekki búin á því þegar ég kem heim???
Ég passaði mig á öllum dóna hugsunum. En minn brenglaði haust las þetta útúr
ReplyDelete"Til allra hamingju höfðum við stöllurnar ekki staðið í stórræðum á klósettinu þarna á undan, en ég hafði notað sturtuna og Faith þvottavélina. Vatnið sem vall þarna upp úr niðurfallinu var því bara nokkuð hreint, miðað við aðstæður."
Þið settuð semsagt ekki ykkar "stórræði" í klósettið heldur í sturtuna og þvottavélina. ojjjj, sérstaklega þetta með þvottavélina.
Kveðja
Rúnar