Nú er aldeilis langt síðan ég bloggaði síðast - ég hef enga afsökun fyrir því en þó tvær ástæður. Sú fyrri er tímaleysi, nóg að gera hérna megin við ritgerðasmíð. Hin síðari tengist hálfgerðri lömun í íslenskri hugsun - ég er svo upptekin af því að skrifa á ensku að ég er bara algerlega andlaus á hinu ástkæra ylhýra móðurmáli. En nú brettir konan upp ermarnar og hamrar hart á ferhyrnda kassann - á íslensku.
Ég má til með að tjá mig aðeins meira um veðrið hérna í Svakatúni. Hér er kalt, já kalt, já alveg svakalega kalt! -15 til -25 gráður þessa síðustu viku. Ég hef aldrei verið í svona köldu veðri! En það er undarlegt hversu fljótt maður venst þessu. Sem betur fer er ekkert rok (ennþá) og sólin skín á snjóinn sem liggur yfir öllu. Nú borgar sig að vera í kanadísku gæsadúnsúlpunni - hún er algert æði! Öll hér eru mjög hissa á viðbrögðum mínum yfir þessum kulda, þau halda að þetta sé bara daglegt brauð heima á Fróni yfir vetrartímann! Ég var nú ekki lengi að útskýra fyrir þeim að -10 gráður á Íslandi þykir mjög kalt, og að ég hefði aldrei fyrr upplifað -20 stiga kulda - þau bara göptu, þessar elskur :)
En góðar næturfréttir. Þegar ég kom í haust sagði Faith mér að í fataskápnum mínum væri rafmagns yfirdýna sem ég mætti nota ef mér yrði kalt. Ég hugsaði með mér að það væri nú meiri vitleysan að nota svoleiðis og steingleymdi öllu um þetta rafmagnstryllitæki. En svo fjölgaði köldu nóttunum og af einskærri nauðsyn poppaði blessuð rafmagnsábreiðan aftur í huga minn. Núna heyra kaldar nætur sögunni til! Áður en ég leggst upp í rúm á kveiki ég á fyrirbrigðinu og þegar ég leggst upp í þá er ylvoglt undir ábreiðunum. Síðan slekk ég á apparatinu áður en ég sofna og ylurinn helst alla nóttina. Dásamlegt alveg hreint! Ætli þetta sé til heima???
Jólagjafirnar hafa verið keyptar, pakkaðar inn og sendar til Íslands. Hjúkk! Hef aldrei keypt jólagjafir svona snemma. En þetta var nauðsynlegt því póstþjónustan í Kanada sökkar bigtime! Sendi afmælispakka til Lilju þann 1. október sl. (í B-pósti) og hann er ekki enn kominn!! 8 vikur liðnar og þau sögðu að þetta tæki í mesta lagi 6 vikur. Ég held að pakkinn sé týndur og kanadískum tröllum gefinn, það verður bara að hafa það. En jólagjafirnar skulu ná Íslandsströndum á réttum tíma!
Kláraði ritgerð í játningarfræði í dag um upprunasögu erfðasyndarinnar. Afar áhugavert efni! Á morgun mun ég syngja messu í kapellu skólans á íslensku - afar ánægjulegt! Um helgina ætla ég að semja prédikun um erfðasyndina, síðan ætla ég að byrja á ritgerð um frásögu fyrstu Mósebókar af skilningstré góðs og ills í tengslum við eldri goðsagnir úr fornum heimi mið-Austurlanda. Afar skemmtilegt! Sem sagt, nóg að gera.
Veit að það verður líka nóg að gera hjá ykkur öllum heima á Fróni. Desember nálgast, þessi yndislegi og annasami mánuður. Njótið aðventunnar, kæru vinir :)
Tekið beint úr textanum. “Þegar ég kom í haust sagði Faith mér að í fataskápnum mínum væri rafmagns .....................sem ég mætti nota” Ég hugsaði með mér að það væri nú meiri vitleysan að nota svoleiðis! “, “En svo fjölgaði köldu nóttunum og af einskærri nauðsyn poppaði ......................... aftur í huga minn.” “Áður en ég leggst upp í rúm á kveiki ég á fyrirbrigðinu “. “Síðan slekk ég á apparatinu áður en ég sofna”” Dásamlegt alveg hreint! Ætli þetta sé til heima???
ReplyDeleteSorry var með kveikt á Breiðbands-heilahvelinu.
Kveðja
RH
Hahaha! Þú ert yndislegur, Rúnar! Miklu skemmtilegri frásagan þegar búið er að taka út óþörfu orðin - lifi Breiðbandsheilahvelið!
ReplyDeleteDalitill loftlagsmunur... Her verdur mer kalt i 25 gradum og hreinlega er ad deyja ef hitinn fer nidur fyrir 20 gradur og neydist tha til ad klaeda mig i flispeysu, sidbuxur og thykka sokka!
ReplyDeleteHer kveikjum vid a kuldakerfinu adur en vid forum ad sofa...
Lifi rafmagnsapparot!